Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
5

08.06.2020

Jákvæðar niðurstöður fyrir íþróttahreyfinguna

Jákvæðar niðurstöður fyrir íþróttahreyfingunaÁnægjuvogin 2020 er nú birt og eru niðurstöður jákvæðar fyrir íþróttahreyfinguna. Skýrslan er unnin fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) af Rannsóknum og greiningu, Háskólanum í Reykjavík. Í skýrslunni má sjá ánægju grunnskólanema í 8., 9. og 10. bekk með íþróttafélagið sitt og áherslur þjálfara í starfi, einnig má sjá þátttöku unglinga af erlendum uppruna í íþróttastarfi, ástæður brottfalls úr íþróttum ásamt vímuefnaneyslu unglinga. Niðurstöður skýrslunnar eru greinanlegar niður á íþróttahéruð.
Nánar ...
08.06.2020

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍSumarfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 22. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
08.06.2020

87. Ársþing USÚ

87. Ársþing USÚ87. Ársþing Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ) fór fram í Stekkhól, félagsheimili Hestamannafélagsins Hornfirðings, 2. júní sl. Þingið var vel sótt, 38 fulltrúar af 46 mættu og öll félög sendu fulltrúa. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður USÚ, setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna. Arna Ósk Harðardóttir stýrði þinginu og Sæmundur H
Nánar ...
05.06.2020

Á æfingu með Hilmari

Á æfingu með HilmariFrjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) er farið af stað með þættina „Á æfingu með…“ þar sem rætt er við frjálsíþróttafólk á Íslandi. Í fyrsta þætti er viðtal við Hilmar Örn Jónsson, sleggjukastara í Fimleikafélagi Hafnafjarðar.
Nánar ...
03.06.2020

Forseti EOC látinn

Forseti EOC látinnForseti Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC, Janez Kocijančič er látinn eftir snarpa baráttu við krabbamein.
Nánar ...
03.06.2020

Heimsókn frá IOC

Heimsókn frá IOCÁ dögunum fékk ÍSÍ heimsókn frá Nalin Chaturvedi, starfsmanni Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) í Lausanne í Sviss, sem starfar við að halda úti vefsíðunni Athlete 365. Á vefsíðunni er að finna mikið magn fræðsluefnis fyrir íþróttafólk, þjálfara og foreldra. Þess má einnig geta að á síðunni eru leiðbeiningar fyrir íþróttafólk varðandi Covid-19. Nalin Chaturvedi hefur góðar tengingar við Ísland og sér fyrir sér að geta í nánustu framtíð miðlað þekkingu sinni til íþróttafólks og annarra innan íþróttahreyfingarinnar.
Nánar ...
03.06.2020

Fundarsköp - Örnámskeið

Fundarsköp - ÖrnámskeiðEitt það mikilvægasta í félagsstarfi er þekking á fundarsköpum. Hvenær eiga fundarsköp við og hvenær ekki? Hvert er hlutverk fundarstjóra? Hvernig virka breytingartillaga, frávísunartillaga og tilvísunartillaga á aðaltillögu? Öllu þessu og meiru til er svarað í nýju myndbandi sem Gunnar Jónatansson stjórnendamarkþjálfi gerði fyrir ÍSÍ.
Nánar ...
02.06.2020

Hlaupum saman

Hlaupum samanSjóvá Kvenna­hlaup ÍSÍ verður haldið þann 13. júní 2020. Nú er hægt að kaupa miða í hlaupið með Kvenna­hlaups­bol eða kaupa miða án þess að kaupa bol.
Nánar ...