Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa eftir að mennta- og menningarmálaráðuneytið setti lög um embættið. Embættið er alfarið á forræði ráðuneytisins og því óháð starfsemi íþrótta- og æskulýðshreyfingarinnar.

Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar. Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.

Starfi samskiptaráðgjafa sinna viðeigandi fagaðilar með menntun og þekkingu á málaflokknum. Samskiptaráðgjafi er með aðsetur í húsnæði Domus Mentis - Geðheilsustöðvar í Reykjavík. Hægt er að hafa beint samband við samskiptaráðgjafa í síma 839-9100 eða 783-9100. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is eða senda tilkynningu í gegnum heimasíðu www.samskiptaradgjafi.is. Svarað verður eins fljótt og auðið er.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem getur aðstoðað og leiðbeint einstaklingum sem telja sig hafa verið beittir ofbeldi eða misrétti í íþrótta- eða æskulýðsstarfi. Þjónusta samskiptaráðgjafa er gjaldfrjáls.

Eftir samtal eða fyrstu samskipti við samskiptaráðgjafa er boðið upp á viðtal ef málið varðar áreitni, ofbeldi eða einelti. Þá er frekari upplýsinga aflað og í kjölfarið eru næstu skref ákveðin, ávallt í samráði við þann sem leitar til samskiptaráðgjafa. Einnig er hægt að leita eftir ráðgjöf hjá samskiptaráðgjafa, ekki þarf að fara lengra með mál ef viðkomandi kýs það ekki.

Vefsíða samskiptaráðgjafa mun hún þjóna sem upplýsinga- og fræðslusíða starfsins. Hægt er að setja sig í samband við samskiptaráðgjafa í gegnum síðuna, tilkynna atvik og fá ráðgjöf eða aðrar upplýsingar.

Verkfærakista samskiptaráðgjafa.

Samræmd viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs.