Ábyrgð í félagsstarfi
Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga.
Í ritinu er gerð grein fyrir þeim lagaramma sem við á í félags- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni á Íslandi og þeim aðgæslu- og eftirlitsskyldum sem hvíla á þeim sem hafa umsjón með börnum.
Í ritinu kemur einnig fram hverjir teljast starfsmenn í félags- og tómstundastarfi og hlutverki foreldra lýst í því sambandi. Einnig er talað um möguleika á tryggingum, frítímaslysatryggingum, sem foreldrar taka fyrir börn sín (hluti af fjölskyldutryggingu), ábyrgðartryggingu þeirra sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi, frítímaslysatryggingu barna sem sveitarfélögin eru með og fjölskyldutryggingu foreldra en í þeim felst ábyrgðartrygging.
Ritið er gefið út af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu 2012 og höfundur þess er Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor í HR.