Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

13.06.2020

Góð þátttaka í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í dag

Góð þátttaka í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í dagSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í dag, í 31. sinn. Frábært hlaupaveður var víðast hvar um landið og þátttakendur geisluðu af orku og krafti. Góð þátttaka var í hlaupinu í dag en gera má ráð fyrir að um 8.000 konur hafi tekið þátt á hátt í 70 stöðum um allt land.
Nánar ...
12.06.2020

Nemendum sem stunda íþróttir líður betur

Nemendum sem stunda íþróttir líður beturUm 90% barna í hverjum árgangi fer í gegnum íþróttastarf með íþróttafélagi á einhverjum tímapunkti. „Þetta er ótrúlega hátt hlutfall. Ef ég væri forstjóri í fyrirtæki, þá væri ég stolt af þessum tölum,“ segir Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu (R&g) og í íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Margrét kynnti niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2020 á kynningarfundi sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir í morgun.
Nánar ...
12.06.2020

Sértækar aðgerðir - Frestur framlengdur til 19. júní

Sértækar aðgerðir - Frestur framlengdur til 19. júníÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) kallar eftir umsóknum frá íþrótta- og ungmennafélögum, íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ sem hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna Covid-19. Er þar meðal annars verið að horfa til sérstakra viðburða, móta og keppnishalds sem ekki gat orðið vegna Covid-19. Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsóknum vegna sértækra aðgerða til og með föstudagsins 19. júní n.k.
Nánar ...
12.06.2020

Kynning á Ánægjuvoginni í dag

Kynning á Ánægjuvoginni í dagÍ dag kl.10 fer fram kynning á Ánægjuvoginni 2020 í fundarsal í Laugardalshöllinni. Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Íþróttafræðideild HR og Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður. Kynningunni verður streymt beint á facebook síðum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ).
Nánar ...
11.06.2020

Lilja fær afhentan Kvennahlaupsbol

Lilja fær afhentan KvennahlaupsbolLilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hleypur daglega sér til heilsubótar. Hún ætlar að taka þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á laugardaginn nk. Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, afhenti Lilju Kvennahlaupsbol í gær.
Nánar ...
10.06.2020

Veggspjöld - Hreinlæti

Veggspjöld - HreinlætiÍSÍ hefur látið útbúa veggspjöld, til þess að nota á netmiðlum eða til útprentunar, sem snúa að hreinlæti við íþróttaiðkun.
Nánar ...
09.06.2020

Kynning á fræðsluvef Athletes 365

Kynning á fræðsluvef Athletes 365Mánudaginn 15. júní kemur Nalin Chaturvedi, starfsmaður IOC sem vinnur við fræðsluvefmiðilinn Athletes 365 sem sjá má hér, í heimsókn í Íþróttamiðstöðina til að kynna efni miðilsins á stuttum fundi. Fundurinn fer fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar og hefst kl.13:15. Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem sjá um þjálfaramenntun innan sérsambanda, ásamt þeim sem sinna landsliðsmálum. Aðrir eru einnig velkomnir. Gert er ráð fyrir að kynningin standi að hámarki í eina klukkustund.
Nánar ...