Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Íshokkíveisla á Instagram Story ÍSÍ í dag
Í dag mun kvennalandslið Íslands í íshokkí taka yfir Instagram Story á Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland. Þær munu sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi landsliðsins er, þegar þær taka þátt á stórmóti, með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Stories.
Sambandsaðilar fylgi ráðleggingum sóttvarnarlæknis vegna kórónaveirunnar
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins á morgun
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2020 fer fram í sal Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) við Laugardalsvöll kl. 12:00 föstudaginn 28. febrúar.
Landslið kvenna í íshokkí tekur yfir Instagram ÍSÍ
Heimsmeistaramót kvenna í íshokkí, 2020 IIHF Women´s World Championship Div IIb, hófst sunnudaginn 23. febrúar sl. í Skautahöllinni á Akureyri. Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Ástralía, Króatía, Úkraína, Nýja Sjáland og Tyrkland. Ísland hefur nú þegar keppt við Ástralíu, Nýja Sjáland og Tyrkland. Í kvöld kl. 20:00 keppir Ísland við Króatíu og síðasti leikur Íslands fer fram laugardaginn 29. febrúar kl. 17:00. Það er einmitt þann dag, laugardaginn 29. febrúar, sem kvennalandslið Íslands í íshokkí ætlar að taka yfir Instagram Story á Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland. Þær munu sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi landsliðsins er, þegar þær taka þátt á stórmóti, með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Stories.
47. Siglingaþing SÍL - Ný sjtórn
47. Siglingaþing Siglingasambands Íslands (SÍL) fór fram þann 22. febrúar sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu hefðbundin þingstörf og mættu fulltrúar siglingafélaganna til að fara yfir mótaskrá og fjármál sambandsins auk þess að velja því nýja stjórn.
Langar þig til Grikklands?
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir einum þátttakanda til að vera fulltrúi ÍSÍ á námskeiði Alþjóðaólympíuakademíunnar (IOA) sem fram fer 23. maí til 3. júní bæði í Aþenu og í Ólympíu. Þemað í ár er ólympismi og húmanismi. Fræðslan fer fram í fyrirlestrum, hópavinnu, fræðsluferðum og með íþróttaþátttöku. Á hverju sumri býður IOA ungum þátttakendum á aldrinum 20-35 ára að taka þátt í tveggja vikna námskeiði þar sem þau fá fræðslu um ólympismann og Ólympíuhreyfinguna.
5 mánuðir til Ólympíuleika 2020
Nú eru fimm mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 24. júlí 2020. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 9. ágúst.
74. ársþing KSÍ
Fimleikastjarna með Instagram ÍSÍ í dag
Sólveig Bergsdóttir, landsliðskona í fimleikum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ í dag.
Lífshlaupið senn á enda
Lífshlaupið er enn í gangi og um að gera að skrá sína hreyfingu og vera með. Vinnustaðakeppninni lýkur á miðnætti á morgun, þriðjudaginn 25. febrúar.
Sólveig fimleikakona á Instagrami ÍSÍ
Sólveig Bergsdóttir, landsliðskona í fimleikum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ þann 24. febrúar nk.
Einungis nokkrir dagar eftir af Lífshlaupinu
Lífshlaupið er enn í gangi og um að gera að skrá sína hreyfingu og vera með. Vinnustaðakeppninni líkur á miðnætti þriðjudaginn 25. febrúar nk. Verið dugleg að skrá hreyfinguna ykkar, það er ekki hægt að breyta/bæta við eftir 25. febrúar. Munið að öll hreyfing hjálpar liðinu þó að fólk sé ekki að hreyfa sig á hverjum degi.