Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

14.06.2018

ÍSÍ vekur athygli á Ólympíudeginum 23. júní nk

ÍSÍ vekur athygli á Ólympíudeginum 23. júní nkÞann 23. júní nk. er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Nánar ...
13.06.2018

Lyfjaeftirlit ÍSÍ og jafningjafræðslan

Lyfjaeftirlit ÍSÍ og jafningjafræðslanNýverið hélt verkefnastjóri Lyfjaeftirlits ÍSÍ, Birgir Sverrisson, erindi fyrir jafningafræðsluna. Erindið fjallaði um anabólíska stera, aukaverkanir og hvatana bakvið notkunina á þeim hvort sem er innan íþrótta eða utan. Hópurinn átti gott spjall um ýmis konar þætti er snúa að andlegum og líkamlegum áhrifum af notkun þessara ólöglegu efna og einnig var rætt um líkamsímynd og umfang notkunar, bæði innan og utan skipulagðs íþróttastarfs. Að lokum var farið stuttlega yfir niðurstöður nýlegra rannsókna á notendum anabólískra stera og rætt um hvernig jafningafræðslan geti stuðlað að því að ungt fólk fái fræðslu um skaðsemi þessara efna og verið miklvægur þáttur í því að hvetja það til heilbrigðar heilsuræktar.
Nánar ...
13.06.2018

Skíðaborg fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Skíðaborg fyrirmyndarfélag ÍSÍSkíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ nú nýverið. Félagið fékk fyrst viðurkenningu árið 2014 en viðurkenninguna þarf að endurnýja á fjögurra ára fresti. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni félagsins Kristínu Önnu Guðmundsdóttur viðurkenninguna á uppskeruhátíð félagsins á Siglufirði. Á myndinni eru þau Viðar og Kristín Anna.
Nánar ...
13.06.2018

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
06.06.2018

Grundvallarréttindi íþróttafólks sett fram

Grundvallarréttindi íþróttafólks sett framNýlega birti stýrihópur innan Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) „Skipulagsskrá íþróttafólks“ sem ætlað er að takast á við og vernda grundvallarréttindi og skyldur íþróttafólks um heim allan. Í stýrihópnum, sem settur var saman af Íþróttamannanefnd IOC, eru 20 íþróttamenn hvaðanæva að úr heiminum.
Nánar ...
06.06.2018

Ásdís Rósa endurkjörin sem formaður HNÍ

Ásdís Rósa endurkjörin sem formaður HNÍÁrsþing Hnefaleikasambands Íslands fór fram sunnudaginn 21. maí í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu þó nokkrar breytingar á regluverki HNÍ, m.a. vegna breytinga hjá AIBA, reglum alþjóðahnefaleikasambandsins.
Nánar ...
06.06.2018

Samningur ÍSÍ og Air Iceland Connect

Samningur ÍSÍ og Air Iceland ConnectÍSÍ og Air Iceland Connect (AIC) undirrituðu í mars 2018 samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna. Samningurinn gildir til 1. febrúar 2019. Samstarf ÍSÍ og AIC, áður Flugfélag Íslands, hefur verið langt og farsælt. Þátttaka í íþróttastarfi á Íslandi felur í sér mikil og kostnaðarsöm ferðalög og mikilvægt er að búa við öruggar og reglubundnar flugsamgöngur á milli landshluta.
Nánar ...
04.06.2018

Ársþing HNÍ

Ársþing HNÍÁrsþing Hnefaleikasambands Íslands (HNÍ) fór fram fimmtudaginn 30. maí 2018 sl. í húsakynnum ÍSÍ. Engar breytingar lágu fyrir fund í regluverki HNÍ. Ný stjórn var kjörin og var Ásdís Rósa Gunnarsdóttir endurkjörin formaður sambandsins. Með henni voru endurkjörin í stjórn Árni Stefán Ásgeirsson (varaformaður) Jónas Heiðar Birgisson (gjaldkeri), Áslaug Rós Guðmundsdóttir (ritari). Meðstjórnendur voru kosnir Sólveig Harpa Helgadóttir, Rúnar Svavarsson og Sigríður Birna Bjarnadóttir. Varamenn voru kosin Birna Árnadóttir, Ingólfur Þór Tómasson og Máni Borgarsson.
Nánar ...
04.06.2018

Laus störf hjá ÍSÍ

Laus störf hjá ÍSÍÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ og verkefnastjóra á Almenningsíþróttasviði ÍSÍ.
Nánar ...
02.06.2018

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2018 fór fram í dag

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2018 fór fram í dagSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og níunda sinn í dag laugardaginn 2. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu en gera má ráð fyrir að um 10.000 konur hafi tekið þátt á yfir 80 stöðum um allt land og víða erlendis.
Nánar ...
02.06.2018

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í dag

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í dagSjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram víðsvegar um land allt í dag, laugardaginn 2. júní. Hlaupin fara fram á mismunandi tímum eftir staðsetningu, en lista yfir hlaupin má finna á vefsíðu hlaupsins.
Nánar ...