Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Virkur ferðamáti
Á setningarhátíð Hjólað í vinnuna þann 6. maí sl. kom það skýrt fram hvað verkefnið Hjólað í vinnuna hefur mikið að segja fyrir samfélagið. Þátttakendur hreyfa sig mikið og sumir mun meira en vanalega. Hreyfing og útivist er frábær leið til vellíðunar og betri andlegrar heilsu og sem forvörn gegn lífsstílstengdum sjúkdómum. Að hreyfa sig á vistvænann og virkan hátt hefur jákvæð áhrif á umhverfið og einnig sparar það heilbrigðiskerfinu þó nokkurn pening.
Ný vefsíða Umboðsmanns barna
Áhersla á hreyfingu aldraðra
Í nýrri stefnu í íþróttamálum Reykjavíkur er mikil áhersla lögð á hreyfingu almennings. Markmiðið er að minnst 70% borgarbúa hreyfi sig rösklega í 30 mínútur þrisvar í viku. Lögð er áhersla á að styðja þurfi við aukna þátttöku aldraðra og gæta þurfi að því að aðstaða í mannvirkjum og á grænum svæðum geti nýst þeim til hreyfingar og íþróttaiðkunar.
Fundur með EOC um áhrif Covid-19
Framkvæmdastjórn Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) hélt sinn annan fjarfund á árinu þann 29. apríl síðastliðinn. Forseti EOC, Janez Kocijančič, stýrði fundinum sem snérist að mestu leyti um íþróttastarfsemi í Evrópu á þessum fordæmalausu tímum. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, er í framkvæmdastjórn EOC og sat fjarfundinn. Á fundinum voru áhrif Covid-19 á íþróttir í álfunni rædd og hvernig skuli taka á brottfalli úr íþróttum í kjölfarið á faraldrinum. Einnig voru ræddar þær leiðir sem hægt væri að fara til að aðstoða þær 50 Ólympíunefndir sem eru innan EOC.
Hjólað í vinnuna hafið
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ræsti Hjólað í vinnuna með hátíðlegum hætti í morgun í Þróttaraheimilinu í Laugardal. Setningarhátíðin var einungis opin boðsgestum og á dagskrá voru hressileg hvatningarávörp ásamt uppistandi.Gleðiefni að geta synt aftur
Í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru hafa áætlanir Sundsambands Íslands (SSÍ) óhjákvæmilega breyst. Öllum er nú ljóst að Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 hefur verið frestað um eitt ár en þeir munu fara fram 23. júlí til 8. ágúst 2021. Sundsamband Íslands hefur sent sundfólk til þátttöku á Ólympíuleikum á flestalla leika frá árinu 1948 og þegar tilkynnt var um frestun leikanna 2020 hafði einn sundmaður tryggt sig inn á leikana, Anton Sveinn McKee. Fleiri stórmótum í sundi hefur verið frestað. Evrópumeistaramótinu í 50m laug sem átti að fara fram í Búdapest í Ungverjalandi um miðjan maí 2020 hefur verið frestað um eitt ár og heimsmeistaramótið í 50m laug sem fara átti fram í Japan 2021 hefur verið fært til 13. - 29. maí 2022.Hjólað í vinnuna hefst á morgun
Nú styttist í að ÍSÍ ræsi keppnina Hjólað í vinnuna 2020 en verkefnið verður sett í átjánda sinn á morgun þann 6. maí. Keppnin stendur yfir til 26. maí nk. Opnað hefur verið fyrir skráningu hér.
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar frestað
Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC) sendi í gær út tilkynningu um að fyrirhugaðri Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF), sem var á dagskrá í héraðinu Banská Bystrica í Slóvakíu sumarið 2021, hefur verið seinkað um eitt ár. Ný dagsetning er 24. til 30. júlí 2022. Þessi breyting er vegna nýrra dagsetninga á Sumarólympíuleikunum í Tókýó, en ómögulegt var talið að halda Ólympíuhátíðina á sama tímabili og Ólympíuleikarnir fara fram í Japan.
Íþróttastarf barna og ungmenna hefst í dag
Í dag hefst íþróttastarf barna og ungmenna að nýju. Íþróttastarf fullorðinna hefst einnig en með nokkrum takmörkunum.Íþróttastarfið til umfjöllunar á blaðamannafundi Almannavarna

Öll félög með virkar reglur og áætlanir
Í nýrri stefnu Reykjavíkur í íþróttamálum til ársins 2030 er gerð krafa um að öll félög verði með virkar siðareglur, eineltis- og jafnréttisáætlanir, sem og áætlanir um viðbrögð við hvers kyns ofbeldi. Að gefnu tilefni vill ÍSÍ benda á það efni sem hægt er að nálgast á vefsíðu ÍSÍ og í prentuðu formi á skrifstofu ÍSÍ við Engjaveg 6.