Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

20.11.2020

Alþjóðadagur barna í dag

Alþjóðadagur barna í dagÍ dag, 20. nóvember, er alþjóðadagur barna haldinn hátíðlegur. Í dag fögnum við saman öllum þeim árangri sem náðst hefur í að bæta stöðu barna um allan heim.
Nánar ...
19.11.2020

Guðbjörg Jóna með Instagram ÍSÍ

Guðbjörg Jóna með Instagram ÍSÍGuðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Frjálsíþróttakona ársins 2019 og Íslandsmetshafi í 100m og 200 m hlaupi, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ á föstudaginn nk. 20. nóvember.
Nánar ...
18.11.2020

Íþróttaboðorðin 10

Íþróttaboðorðin 10Íþróttastarf barna fædd 2005 og síðar verður heimilað á ný í dag 18. nóvember og því ber að fagna. Íþróttir eru vinsælasta tómstundaiðkun barna á Íslandi en rúmlega níu af hverjum tíu börnum stunda íþróttir með íþróttafélagi einhvern tímann á ævinni. Á Íþróttaþingi ÍSÍ 2015 var barna- og unglingastefna ÍSÍ endurskoðuð en hún var fyrst samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 1996. Í stefnunni er mikil áhersla lögð á að íþróttir eigi að vera fyrir alla, þær þurfi að vera skemmtilegar og að leikurinn spili stóran sess. Barna- og unglingastefnunni til stuðnings voru Íþróttaboðorðin tíu mörkuð.
Nánar ...
16.11.2020

Íðorðasafn um íþróttir

Íðorðasafn um íþróttirÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hlaut fyrr á árinu styrk úr Málræktarsjóði til að koma upp íðorðasafni um íþróttir. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er miðstöð íðorðastarfs á Íslandi og þar er að finna fjölbreytt fagorðasöfn en ekkert um íþróttir. Úr því er verið að bæta og fékk ÍSÍ til liðs við sig Gísla Ásgeirsson þýðanda, sem býr ekki einungis yfir afburða þekkingu á íslenskri tungu heldur þekkir íþróttahreyfinguna eftir að hafa komið að fjölbreyttum verkefnum innan vébanda ÍSÍ í gegnum tíðina.
Nánar ...
14.11.2020

Íþróttabærinn Akureyri

Íþróttabærinn AkureyriSjónvarpsstöðin N4 hefur hafið sýningar á áhugaverðum íþróttaþætti sem kallast „Íþróttabærinn Akureyri“ þar sem allskonar íþróttir eru skoðaðar út frá aðeins öðruvísi sjónarhorni en tíðkast. Í þessu 19.000 manna bæjarfélagi er í boði að æfa 40 íþróttagreinar. Í fimm þáttum kafa þáttastjórnendur ofan í íþróttalíf bæjarins, hitta fjölskyldur sem æfa allskonar íþróttir út um allar trissur, taka áskoranir við atvinnuíþróttafólk og kynnast íþróttalífi bæjarins á lifandi hátt.
Nánar ...
13.11.2020

Fjárhagsumræða fyrirferðarmikil á Formannafundi ÍSÍ

Fjárhagsumræða fyrirferðarmikil á Formannafundi ÍSÍÁrlegur Formannafundur ÍSÍ var haldinn síðdegis í dag. Fundinn, sem er upplýsingafundur, sitja formenn og framkvæmdastjórar sambandsaðila ÍSÍ ásamt framkvæmdastjórn ÍSÍ og starfsfólki ÍSÍ. Fundurinn var haldinn á Microsoft Teams og var þátttakan frábær eða yfir 100 manns.
Nánar ...
13.11.2020

Breyttar reglur um samkomutakmarkanir frá 18. nóvember

Breyttar reglur um samkomutakmarkanir frá 18. nóvemberHeilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný.
Nánar ...