Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Íþróttaslysasjóður
ÍSÍ tekur ekki lengur við nýjum umsóknum í Íþróttaslysasjóð.
Rýnifundur um áherslur íþróttahreyfingarinnar í almenningsíþróttum
Þriðjudaginn 10. mars bauð Almenningsíþróttasvið og Almenningsíþróttanefnd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands til rýnifundar um áherslur íþróttahreyfingarinnar í almenningsíþróttum. Gestir fundarins voru stjórnar- og starfsfólk ÍSÍ, nefndarmenn sviðsins, starfsmenn sambandsaðila ÍSÍ, starfmenn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), starfsmenn nokkurra íþróttafélaga og starfsmaður frá Embætti landlæknis.
Ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta
Á vefsíðu Embættis landlæknis birtist í gær frétt um ráðgjöf vegna COVID-19 og mannamóta. Fréttina má sjá hér.
Parsons forseti IPC heimsækir Ísland
Fundur um Covid-19 veiruna
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá vinna heilbrigðisyfirvöld samkvæmt viðbragðsáætlunum Embættis landlæknis, sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í baráttunni við Covid-19 veiruna. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn funduðu í dag með fulltrúum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fulltrúum sérsambanda ÍSÍ vegna málsins.
Heiðranir á ársþingi UMSK
ÍSÍ veitti á ársþinginu þremur einstaklingum viðurkenningu fyrir ósérhlífið starf á vegum íþróttahreyfingarinnar um árabil, þeim Magnúsi Gíslasyni, Eiríki Mörk og Kristínu Finnbogadóttur.
Skautahöllin á Akureyri 20 ára
Skautahöllin á Akureyri varð 20 ára þann 1. mars síðastliðinn og kvennalið Skautafélags Akureyrar var einnig stofnað í byrjun árs 2000. Af þessu tilefni boðaði Skautafélag Akureyrar til viðburðar í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 29. febrúar síðastliðinn. Það var skemmtilegt að heimsmeistaramótið í íshokkí kvenna í 2. deild B skyldi standa yfir þessa helgi. Íslenska landsliðið var einmitt að fara að spila síðasta leik sinn í keppninni strax að lokinni afmælisathöfninni. Þess má geta að íslenska liðið vann þann leik og endaði í 2. sæti, sem er frábær árangur.
Hilmar Snær fyrstur til að vinna Evrópumótaröðina
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Skíðadeild Víkings varð þann 28. febrúar sl. fyrstur Íslendinga til þess að vinna sigur á Evrópumótaröð Alþjóðaólympíuhreyfingu fatlaðra (IPC) í alpagreinum. Hilmar sigraði í svigkeppninni og að henni lokinni var ljóst að ekki yrði keppt í stórsvigi vegna aðstæðna. Hilmar var því sigurvegari heildarstigakeppninnar á Evrópumótaröðinni með gull í svigi og silfur í stórsvigi. Hilmar hefur síðustu ár klifrað hratt upp metorðastigann í alpagreinum og er nú á meðal allra fremstu alpagreinamanna fatlaðra í heiminum.
ÍF og SSÍ vinna saman að framþróun sundíþróttarinnar
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) og Sundsamband Íslands (SSÍ) undirrituðu nýverið samstarfssamning sín á milli um gagnkvæma skuldbindingu sérsambandanna um framþróun sundíþróttarinnar, sameiginlegt mótahald fatlaðra og ófatlaðra og leitast með því að tryggja sundfólki bestu mögulegu aðstæður.
Leiðbeiningar sóttvarnarlæknis varðandi samkomur
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur ítrekað að ekki hefur verið lýst yfir samkomubanni af yfirvöldum hér á landi.
Sara Rós dansari með Instagram ÍSÍ í dag
Sara Rós Jakobsdóttir, margfaldur Íslands- og bikarmeistari í dönsum, sýnir fylgjendum ÍSÍ á Instagram hvernig dagur í sínu lífi er, í dag.
Íþróttafólk UMSK 2019
Ársþing Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) fór fram 3. mars sl. Á þinginu voru veittar viðurkenningar fyrir Íþróttafólk ársins 2019. Valgarð Reinhardsson, fimleikamaður úr Gerplu, var valinn Íþróttakarl UMSK 2019 og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki, var valin Íþróttakona UMSK 2019.