Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
100 ára afmæli UMF Neista vel heppnað
Síðasti dagur til að sækja um að fara til Ólympíu
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 1.- 15. júní n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið „Olympic Diplomacy and Peace?“
Lokasprettur Lífshlaupsins
Nú er vinnustaðakeppni Lífshlaupsins senn á enda, en síðasti dagur keppninnar er 26. febrúar. Lífshlaupið er landskeppni í hreyfingu sem er ekki einungis hvatning fyrir einstaklinga til að taka sig á og byrja að bæta lífsstíl með aukinni hreyfingu, heldur er það skemmtileg keppni milli vinnustaða og frábært tækifæri fyrir vinnustaði til þess að efla liðsandann/starfsandann á vinnustaðnum. Vinnustaðir geta skráð eins mörg lið og þeir vilja og efnt til keppni innan vinnustaðarins. Öll lið telja þó saman undir einum vinnustað í heildarkeppni Lífshlaupsins. Hér má sjá stöðu keppninnar.
Starfsskýrsluskil í Felix
Búið er að opna fyrir skil á starfsskýrslum í Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá þurfa allir sambandsaðilar ÍSÍ að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert í gegnum Felix kerfið. Þeir sambandsaðilar sem ekki hafa enn haldið sína aðalfundi, geta sótt um frest til að skila ársreikningshluta skýrslunnar fram yfir aðalfund viðkomandi. Umsókn um frest þarf að senda skriflega á netfangið isi@isi.is, með afriti til viðkomandi íþróttahéraðs.Sigríður Bjarnadóttir sæmd Gullmerki ÍSÍ
Á 95. ársþingi UMSK sem fór fram 21. febrúar sl. var Sigríður Bjarnadóttir í íþróttafélaginu Glóð í Kópavogi sæmd Gullmerki ÍSÍ fyrir störf sín við uppbyggingu íþróttastarfs í Glóð. Sigríður Bjarnadóttir er einn af stofnendum Glóðar og starfaði um tíma sem formaður félagsins. Hún hefur tekið virkan þátt í að gera Glóð að farsælu íþróttafélagi fyrir eldri borgara og var einn af hvatamönnum fyrir því að innleiða Ringó sem keppnisgrein á Íslandi. Síðustu 7 ár hefur hún starfað í Íþróttanefnd Glóðar og var um tíma formaður nefndarinnar. Hún hefur sinnt störfum fyrir Glóð af alúð og kostgæfni og lagt mikið af mörkum. Hún hefur verð ötul að sækja þingin, ekki einungis hjá UMSK, heldur líka Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands. Sigríður er áhugasöm um lýðheilsu og heilbrigð efri ár, vinnusöm og heiðarleg. Sigríður er vel að því komin að hljóta Gullmerki ÍSÍ. Það var Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, sem afhenti Sigríði Bjarnadóttur Gullmerki ÍSÍ.
Íþróttafólk UMSK 2018
Sveitarfélög innan Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) hafa nýverið valið íþróttakonu og íþróttamann ársins 2018.
95. ársþing UMSK - Valdimar Leo endurkjörinn
Valdimar Leo Friðriksson var endurkjörinn formaður UMSK á 95. ársþingi sambandsins þann 21. febrúar sl. Theodór Kristjánsson sem var í varastjórn gaf ekki kost á sér áfram og Geirarð Long úr Aftureldingu var kosinn inn í staðinn. Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir. Stjórn UMSK er því skipuð eftirfarandi: Valdimar Leo Friðriksson formaður, Magnús Gíslason HK, Guðmundur Sigurbergsson Breiðabliki, Lárus B. Lárusson Gróttu, Hanna Carla Jóhannsdóttir HK, Halla Garðarsdóttir Breiðabliki, Þorsteinn Þorbergsson Stjörnunni, Geirarður Long Aftureldingu. Hafsteinn Pálssson og Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ voru fulltrúar ÍSÍ á þinginu.
150 dagar til Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Bakú
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Bakú í Azerbaijan 21. - 27. júlí 2019. Mun þetta vera í fimmtánda skiptið sem Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram að sumri til.
Glæsilegt verkefni hjá KKÍ - Driplið
Körfuknattleikssamband Íslands hefur undanfarna mánuði unnið að verkefni sem kallast „Driplið“, en Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna á aldrinum 9-11 ára og auka áhuga á tækniæfingum. Útbúin hafa verið 7 myndbönd sem sýna 17 tækniæfingar. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.
Námskeið í Ólympíu
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 1.- 15. júní n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið „Olympic Diplomacy and Peace?“
Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu
Í dag er síðasti keppnisdagur í grunn- og framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins og því líður senn að lokaniðurstöðu í þeim hluta Lífshlaupsins. Nú er því tíminn fyrir nemendur á öllum stigum að ljúka sínum lokaspretti í Lífshlaupinu. Þeir sem annast skráningar á hreyfingu þurfa að ljúka sínum innskráningarverkum sem fyrst þannig að engin hreyfing verði skilin eftir óskráð, en það verður hægt að skrá hreyfingu í kerfið út þessa viku.
Fræðsla um lyfjamál á Akureyri
Næstkomandi fimmtudag, 21. febrúar, mun Birgir Sverrisson frá Lyfjaeftirliti Íslands halda fræðsluerindi þar sem fjallað verður almennt um lyfjamál í íþróttum og samfélaginu. Fundurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri frá kl.16:30-18:00.