Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Lokasprettur Lífshlaupsins

26.02.2019

Nú er vinnustaðakeppni Lífshlaupsins senn á enda, en síðasti dagur keppninnar er í dag 26. febrúar. Lífshlaupið er landskeppni í hreyfingu sem er ekki einungis hvatning fyrir einstaklinga til að taka sig á og byrja að bæta lífsstíl með aukinni hreyfingu, heldur er það skemmtileg keppni milli vinnustaða og frábært tækifæri fyrir vinnustaði til þess að efla liðsandann/starfsandann á vinnustaðnum. Vinnustaðir geta skráð eins mörg lið og þeir vilja og efnt til keppni innan vinnustaðarins. Öll lið telja þó saman undir einum vinnustað í heildarkeppni Lífshlaupsins. Hér má sjá stöðu keppninnar.

Á meðan Lífshlaupinu stendur er skráningarleikur í gangi en einn heppinn þátttakandi í vinnustaðakeppninni, einn í framhaldsskólakeppninni og einn bekkur í grunnskólakeppninni eru dregin út alla virka morgna í morgunþættinum Morgunverkin á Rás 2. 

Þar að auki er myndaleikur í gangi en á meðan á Lífshlaupinu stendur eru allir hvattir til að deila myndum af þátttöku sinni í gegnum vefsíðuna og einnig á Facebook eða Instagram með myllumerkinu #lifshlaupid. Allir myndasmiðir fara í lukkupott í myndaleik Lífshlaupsins og eiga möguleika á að vera dregnir út og vinna flotta vinninga. Þá verða einnig flottustu myndirnar verðlaunaðar sérstaklega í lok keppninnar og því er um að gera að taka myndarlega á því við myndasmíðina. Tveir heppir þátttakendur hafa verið dregnir út í myndaleik Lífshlaupsins en það eru þau Sveinn Viðarsson og Jóna Lind. Sveinn fékk gjafabréf fyrir tvo í Laugarspa og Jóna Lind fékk ostakörfu frá MS. Mynd Jónu Lindar má sjá hér með fréttinni.

Vefsíða Lífshlaupsins

Facebook síða Lífshlaupsins

Instagram síða Lífshlaupsins