Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. ÍSÍ hvetur íþróttafélög, -deildir og -héruð til að sækja um þessa viðurkenningu til ÍSÍ.
Hjólað í vinnuna lýkur í dag
Síðasti keppnisdagur Hjólað í vinnuna er í dag, þriðjudaginn 22. maí. Hægt er að skrá ferðir fyrir daginn í dag fram til miðnættis. Lokað verður fyrir allar skráningar kl. 13.00 á morgun, miðvikudaginn 23. maí.
Skrifstofa ÍSÍ lokuð í dag
Í dag, þann 21. maí, er lokað á skrifstofu ÍSÍ. Skrifstofan opnar á morgun, þriðjudaginn 22. maí kl.8:30.
Fimleikasamband Íslands 50 ára
Fimleikasamband Íslands (FSÍ) fagnaði 50 ára afmæli í gær þann 17. maí 2018. Á sama degi árið 1968 stofnuðu fulltrúar frá níu héraðssamböndum Fimleikasamband Íslands. Í tilefni afmælisins efndi sambandið til veislu og bauð fimleikafólki og öðrum áhugasömum að mæta í Laugardalshöll, en til stóð að slá heimsmet í handstöðu. Fyrra metið var 399 manns og var stefnan sett á 500 manns. Í gær mættu hins vegar 607 einstaklingar í höllina, sem tóku handstöðu á sama tíma og slógu heimsmetið. Nú bíður Fimleikasamband Íslands þess að Heimsmetabók Guinness staðfesti metið. Fimleikafélög úti á landi tóku þátt í hátíðinni með því að halda sín eigin handstöðupartý, með köku í boði FSÍ og fimleikagleði.
Hjólað í vinnuna 2018
Síðasti keppnisdagur verkefnisins er þriðjudagurinn 22. maí. Lokað verður fyrir skráningu kl: 13:00 miðvikudaginn 23. maí.
Ungir ljósmyndarar fá tækifæri í BuenosAires 2018
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) leitar nú að ungum framúrskarandi ljósmyndurum á aldrinum 18-24 ára sem hafa áhuga á að taka þátt í skemmtilegu og fræðandi ljósmyndaverkefni á Ólympíuleikum ungmenna (Youth Olympic Games - YOG) í Buenos Aires í september 2018. IOC mun velja sex ljósmyndara, þrjár konur og þrjá karla, til þess að taka þátt í verkefninu. Leiðbeinendur í verkefninu eru margverðlaunaðir ljósmyndarar í íþróttaheiminum, Bob Martin, Simon Bruty, Thomas Lovelock, Joel Markland og Nick Didlick.
Vefsíðan Sýnum karakter
Nýtt íþrótta- og fimleikahús í Kópavogi
Íþróttahús við Vatnsendaskóla í Kópavogi var vígt við hátíðlega athöfn á föstudaginn síðastliðinn, á afmæli Kópavogsbæjar. Nýja húsið er sérhannað fyrir þjálfun í hópfimleikum og mun Íþróttafélagið Gerpla nýta húsið ásamt Vatnsendaskóla sem verður með íþróttakennslu í húsinu.Hjólað í vinnuna
Hjólað í vinnuna er nú í fullum gangi, en keppninni lýkur þann 22. maí. Vert er að benda á að hjólaðar vegalengdir til og frá vinnu er ekki eingöngu það sem má skrá í keppninni heldur telst allur virkur ferðamáti með, eins og ganga, hlaup, hjólabretti, línuskautar og strætó.
Kvennahlaupsbolirnir komnir í hús
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram 2. júní nk. Nú eru kvennahlaupsbolirnir komnir til landsins og allt á fullu í undirbúningi fyrir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.
Ársþing HSV - Guðný sæmd Gullmerki ÍSÍ
Vel heppnað Grunnskólamót UMSK
Grunnskólamót UMSK í blaki fór fram á gervigrasinu í Kórnum í Kópavogi þann 9. maí sl. Hátt í áttahundruð börn úr 4. - 7. bekk í 15 grunnskólum á UMSK svæðinu (Mosfellsbæ, Garðabæ og Kópavogi) mættu og skemmtu sér frábærlega í skemmtilegri íþrótt. Spilað var nokkurskonar krakkablak þar sem tveir eru á vellinum í einu úr hvoru liði og fór leikur fram á 64 blakvöllum. Verkefnið var samstarfsverkefni UMSK og Blaksambands Íslands og fékk verkefnið styrk frá Ólympíusamhjálpinni. Mótið gekk vel, krakkarnir skemmtu sér og sýndu flotta takta.