Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram víðsvegar um land allt laugardaginn 2. júní næstkomandi. Hlaupin fara fram á mismunandi tímum eftir staðsetningu, en lista yfir hlaupin má finna á vefsíðu hlaupsins.
Ársþing ÍRB
Á þinginu voru lagðar fram lagabreytingar sem voru kynntar fyrir aðildarfélögum með boðun þings. Einar Haraldsson formaður lagabreytinganefndar kynnti tillögur nefndarinnar og voru breytingarnar á lögum bandalagsins svo samþykktar samhljóða af þingfulltrúum. Helsta breytingin sneri að mætingu aðildarfélaga á ársþing bandalagsins. Ef aðildarfélag sækir ekki ársþing er heimilt að skerða félagið um 50% af lottó tekjum þess. Af 10 aðildarfélögum ÍRB áttu einungis 4 þingfulltrúa á þinginu núna, með 26 þingfulltrúa.
Erindi í HÍ um skipulag og áhrif íþrótta í Bandaríkjunum
Gunnar Valgeirsson, prófessor við California State University, fjallar um skipulag og áhrif íþrótta í Bandaríkjunum í erindi í Háskóla Íslands föstudaginn 1. júní nk. Erindið verður í stofu 101 í Odda og stendur frá kl. 12-13.15.
Nýr formaður kjörinn í KLÍ
25. ársþing Keilusambands Íslands fór fram í ÍR-heimilinu sunnudaginn 27. maí sl. Ásgrímur Helgi Einarsson gaf ekki kost á sér áfram í embætti formanns og var því kjörinn nýr formaður sambandsins. Jóhann Ágúst Jóhannsson var kjörinn formaður KLÍ til næstu tveggja ára.7. ársþing Skylmingasambands Íslands
7. ársþing Skylmingasambands Íslands (SKY) var haldið 24. maí 2018 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, en þing sambandsins eru haldin annað hvert ár. Alls sóttu þingið 15 fulltrúar frá þremur aðildarsamböndum SKY. Anna Karlsdóttir varaformaður flutti skýrslu stjórnar og formaður sambandsins Nikolay Mateev reikninga þess, en sambandið var rekið með hagnaði bæði rekstrarárin. Á þinginu voru kynntar breytingar á móta- og keppendareglum, svo og hvata- og styrktarkerfi sambandsins til afreks- og landsliðsfólks. Á þinginu var skrifað undir styrktarsamning Orkusölunnar við SKY til næstu ára.
Smáþjóðaleikar Evrópu - Eitt ár í leika
Aðalfundur og fundur tækninefndar Smáþjóðaleika Evrópu fóru fram í gær og í dag í borginni Budva í Svartfjallalandi. Fundina sóttu þau Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ sem einnig á sæti í tækninefnd leikanna.Laus störf hjá ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ annars vegar og Almenningsíþróttasvið ÍSÍ hins vegar.
Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna
Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2018 fór fram í hádeginu í dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal að viðstöddum húsfylli.
Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna á morgun
Verðlaunaafhending fer fram í hádeginu á morgun föstudaginn 25. maí kl. 12:10 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Við bjóðum þér að hjóla við og þiggja gómsæta súpu og nýbakað brauð meðan á afhendingu stendur. Vinningshafar í liðsstjóraleiknum verða tilkynntir og veitt verðlaun frá Erninum
Hvernig höldum við gleðinni í íþróttum á tímum afreksmennsku?
Hvernig er hægt að tryggja áfram félagslegt og uppeldislegt gildi íþrótta fyrir börn og ungmenni og stuðla um leið að áframhaldandi góðum árangri íslenskra íþróttamanna? Leitað verður svara við þessari spurningu á sjötta og síðasta fundinum í fundaröð Háskóla Íslands Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin.
Úrslit Hjólað í vinnuna 2018
Hjólað í vinnuna var haldið í sextánda sinn í ár. Nú er keppni lokið og úrslit eru ljós. Hér má nálgast staðfest úrslit þriggja efstu vinnustaða í hverjum flokki. Heildar stöðu keppninnar má svo nálgast hér. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra.
Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ
Hjá ÍSÍ eru starfandi fjölmargar nefndir og ein þeirra er Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ. Nú, í aðdraganda Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ sem fram fer á landsvísu 2. júní nk., er í nógu að snúast hjá nefndinni og kom hún saman á fundi í höfuðstöðvum ÍSÍ í vikunni. Í Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ sitja Þráinn Hafsteinsson, Ingibjörg B. Jóhannesdóttir, Anna Ragnheiður Möller og Gígja Gunnarsdóttir. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti nýlega að fjölga í nefndinni og var Þráinn, sem einnig á sæti í framkvæmdastjórn ÍSÍ, þá skipaður í nefndina. Hann er fyrsti karlmaðurinn sem á sæti í nefndinni. Gert er ráð fyrir að nefndin verði stækkuð um einn til viðbótar síðar á þessu ári og telji þá samtals fimm.