Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

17.02.2017

LA, París eða Búdapest

LA, París eða BúdapestÞrjár borgir keppast um að halda Ólympíuleikana árið 2024. Þær borgir sem sóttu um að halda leikana eru Búdapest í Ungverjalandi, Hamborg í Þýskalandi, Los Angeles í Bandaríkjunum, París í Frakklandi og Róm á Ítalíu. Nú hafa tvær borgir dregið sig úr keppninni um að halda leikana, Hamborg og Róm. 100 meðlimir Alþjóðaólympíunefndarinnar munu kjósa á milli þessarra borga þegar nefndin mun funda í Líma í Perú 13. september 2017.
Nánar ...
15.02.2017

Þriðja keppnisdegi lokið

Þriðja keppnisdegi lokiðÁ þriðja keppnisdegi Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar áttum við ​keppendur í listskautum, svigi stúlkna og brettaati drengja.
Nánar ...
15.02.2017

65 nemendur í vorfjarnámi

65 nemendur í vorfjarnámiVorfjarnám 1. og 2. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ er nú komið í fullan gang. Samtals um 65 nemendur eru í náminu að þessu sinni sem er ansi nálægt því að vera metþátttaka. Nemendur koma frá fjölmörgum greinum íþrótta s.s. handknattleik, körfuknattleik, knattspyrnu, fimleikum, skíðaíþróttum, skautaíþróttum, taekwondo, blaki, borðtennis, lyftingum, karate og hjólreiðum svo eitthvað sé nefnt.
Nánar ...
14.02.2017

Öðrum keppnisdegi lokið í Erzurum

Öðrum keppnisdegi Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar sem nú fer fram í Erzurum í Tyrklandi er nú lokið. Í dag áttum við fulltrúa í skíðagöngu og stórsvigi.
Nánar ...
14.02.2017

Fararstjórnin í Erzurum

Fararstjórnin í ErzurumNú stendur yfir Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fer fram í Erzurum í Tyrklandi. Það eru ekki einungis keppendur sem hafa staðið í ströngu þessa dagana heldur er einnig öflugt teymi þeim til aðstoðar.
Nánar ...
14.02.2017

Tókýó 2020 - Verðlaunapeningar úr gömlum símum

Tókýó 2020 - Verðlaunapeningar úr gömlum símumNæstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Skipuleggjendur leikanna leggja mikið upp úr umhverfisvitund og sjálfbærni og vilja hvetja Japani til þess að gera slíkt hið sama. Skipuleggjendur hafa nú brugðið á það ráð að koma af stað söfnun, sem hefst í apríl nk., þar sem almenningur í Japan er beðinn um að gefa gamla farsíma og önnur lítil tæki í söfnunarkassa víðsvegar um Japan. Stefnt er að því að safna átta tonnum af málmi til þess að búa til tvö tonn af gulli, silfri og bronsi. Úr þessum tveimur tonnum verða síðan verðlaunapeningarnir sem afhentir verða verðlaunahöfum á Ólympíuleikunum í Tókýó búnir til.
Nánar ...
14.02.2017

Lífshlaupið - Grunn- og framhaldsskólakeppni lokið

Lífshlaupið var sett 1. febrúar í ár. Í dag, 14. febrúar, er síðasti dagurinn í grunn- og framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins. Nú er því tíminn fyrir börn og unglinga til að taka góðan endasprett í átt að lokamarkinu og klára keppnina með stæl.
Nánar ...
13.02.2017

Fyrsta keppnisdegi EYOWF lokið

Fyrsta keppnisdegi EYOWF lokiðÍ dag hófst keppni á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum. Stúlkurnar María Finnbogadóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir, Katla Björg Dagbjartsdóttir og Sigríður Dröfn Auðunsdóttir kepptu í stórsvigi og stóðu sig með sóma. María varð í 19. sæti og með þriðja besta tímann í sínum árgangi. Harpa María varð í 32. sæti, Katla Björg varð í 33. sæti og Sigríður varð í 39. sæti. Í stuttu prógrammi á listskautum keppti Herdís Birna Hjaltalín. Hún varð í 19. sæti.
Nánar ...
13.02.2017

Námskeið ungra þátttakenda í Ólympíu

Námskeið ungra þátttakenda í ÓlympíuÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 16. júní-1.júlí n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið íþróttastjórnun og ólympíuhreyfingin, en auk þess verður lögð áhersla á siðfræði og menntun.
Nánar ...
13.02.2017

Sýnt beint frá Erzurum

Sýnt beint frá ErzurumSýnt er beint frá Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum frá 12. - 17. febrúar á vefsíðu hátíðarinnar
Nánar ...