Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
96. ársþing UMSK
96. ársþing Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) var haldið þann 3. mars sl. í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Áður en þingið var sett fóru fram tvær kynningar. Sema Erla Serdar kynnti Æskulýðsvettvanginn, sem er samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagins Landsbjargar. Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna. Ólafur Rafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands (RSÍ), kynnti rafleiki og starfsemi samtakanna en nokkur íþróttafélög eru farin að bjóða upp á skipulagðar æfingar í rafleikjum í sínu starfi.
Lyftingaþing LSÍ
Lyftingaþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) var haldið þann 1. mars sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hafsteinn Pálsson, annar varaforseti ÍSÍ, var þingforseti og ávarpaði þingið. Farið var yfir ársreikninga, ársskýrslu og fjárhagsáætlun sambandsins. Stjórn er sem hér segir: Magnús B. Þórðarson formaður, Árni Rúnar Baldursson varaformaður, Ásgeir Bjarnason gjaldkeri, Jens Andri Fylkisson ritari og Davíð Ólafur Davíðsson meðstjórnandi. Í varastjórn eru: Einar Ingi Jónsson, Ingi Gunnar Ólafsson (einnig formaður tækninefndar), Sigurður Darri Rafnsson og Þór Reynir Jóhannsson. Framkvæmdastjóri LSÍ er Maríanna Ástmarsdóttir.
Dagur í lífi Söru Rósar dansara
Sara Rós Jakobsdóttir, margfaldur Íslands- og bikarmeistari í dönsum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ nk. fimmtudag, 5. mars.
4. Þríþrautarþing ÞRÍ
Þríþrautarþing Þríþrautarsambands Íslands (ÞRÍ) fór fram í fjórða sinn þann 29. febrúar sl. Dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum ÞRÍ. Kjörinn var nýr formaður, Valerie Maier, til tveggja ára. Í aðalstjórn voru Guðbjörg Jónsdóttir og Helgi Sigurgeirsson kjörin til tveggja ára og Hákon Hrafn Sigurðsson til eins árs. Í varastjórn voru Ingi B. Poulsen, Sigurjón Ólafsson og Sædís Jónsdóttir kjörin til eins árs. Áfram situr í aðalstjórn Aðalsteinn Friðriksson, kjörinn til tveggja ára á 3. þríþrautarþingi sem haldið var 2019. Fráfarandi úr stjórn eru Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé formaður, Sarah Cushing aðalstjórn og Ragnar Haraldsson varastjórn. Hafsteinn Pálsson, annar varaforseti ÍSÍ, var þingforseti. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði þingið.
Heiðranir á ársþingi KRAFT
Á þinginu fór fram formanns- og stjórnarkjör. Formenn fastanefnda voru kosnir til tveggja ára. Gry Ek Gunnarsson var endurkjörin formaður til eins árs. Aron Ingi Gautason, Laufey Agnarsdóttir og Muggur Ólafsson taka nú sæti í stjórn með umboð til næstu tveggja ára. Sólveig H. Sigurðardóttir var kjörin formaður dómaranefndar, Einar Örn Guðnason formaður mótanefndar, Róbert Kjaran formaður landsliðsnefndar, Sigurjón Pétursson formaður laganefndar og Gry Ek formaður heiðursmerkjanefndar. Úr stjórn gengu Aron Friðrik Georgsson, Alex Orrason og Guðbrandur Sigurðsson.
Bogfimi í sókn
Bogfimi hefur vaxið hratt á landsvísu undanfarin ár og er nú stunduð í tíu íþróttafélögum innan vébanda níu íþróttahéraða. Nýlega lauk Íslandsmóti ungmenna og öldunga í bogfimi og ljóst að áhuginn fyrir bogfimi er mikill því metskráning var í mótið. Þann 13. - 15. mars fer síðan Íslandsmeistaramótið innanhúss fram í Bogfimisetrinu.
Sambandsaðilar fylgi ráðleggingum sóttvarnarlæknis vegna kórónaveirunnar
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vill vekja athygli á leiðbeiningum sóttvarnarlæknis í tengslum við kórónaveiruna og hvetur sambandsaðila að fylgjast með nýjustu uppfærslum varðandi skilgreiningar á áhættusvæðum. Þeir sambandsaðilar sem hyggja á ferðalög með íþróttahópa ættu að kynna sér allar upplýsingar varðandi smitsvæði á vefsíðu Embættis landlæknis. ÍSÍ bendir sambandsaðilum sínum á að fylgja ráðleggingum sóttvarnalæknis um sóttkví vegna kórónuveirunnar hafi aðilar verið á skilgreindum áhættusvæðum. Bent er á að mælst er til þess að þeir sem hafi verið nýlega á þessum áhættusvæðum fari fjórtán daga sóttkví og hafi samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslustöð. Hafa ber í huga þau áhrif sem aðgerðir stjórnvalda á áhættusvæðum geta haft á ferðaáætlanir og fylgjast vel með fréttum, þarlendis og á vef Embættis landlæknis þar sem skilgreiningar á svæðum með viðvarandi smit geta breyst hratt.
Aldís fyrst Íslendinga á HM á skautum
Aldís Kara Bergsdóttir skautakona er nú stödd í Tallin í Eistlandi til að keppa fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti unglinga í listskautum sem fer fram 2. til 8. mars. Er þetta í fyrsta skiptið sem íslenskur skautari keppir á heimsmeistaramóti í listskautum í einstaklingskeppni. Aldís mun keppa í stuttu prógrami föstudaginn 6. mars nk. klukkan 10:45 að staðartíma en Tallinn er tveimur klukkustundum á undan Íslandi. Það kemur í ljós fimmtudaginn 5. mars hvar í rásröðinni hún lendir en þá verður dregið í keppnisröð kl 15:30 á staðartíma.
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2020
Fulltrúar frá vinnustöðum, grunn-, og framhaldsskólum tóku á móti sínum verðlaunum sl. föstudag á verðlaunaafhendingu Lífshlaupsins 2020 sem fór fram í sal KSÍ við Laugardalsvöll. Metþátttaka var í Lífshlaupinu í ár. Þátttakendur voru samtals 18.198 í 1.680 liðum og voru alls 16.261.466 hreyfimínútur skráðar og 209.413 dagar.
Íshokkíveisla á Instagram Story ÍSÍ í dag
Í dag mun kvennalandslið Íslands í íshokkí taka yfir Instagram Story á Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland. Þær munu sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi landsliðsins er, þegar þær taka þátt á stórmóti, með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Stories.
Sambandsaðilar fylgi ráðleggingum sóttvarnarlæknis vegna kórónaveirunnar
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins á morgun
Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2020 fer fram í sal Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) við Laugardalsvöll kl. 12:00 föstudaginn 28. febrúar.