Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Guðrún Inga og Vignir Már sæmd Gullmerki ÍSÍ
Guðni endurkjörinn formaður
73. ársþing KSÍ var haldið á Hótel Nordica Reykjavík þann 9. febrúar sl. Guðni Bergsson var þar endurkjörinn sem formaður KSÍ til næstu tveggja ára með 119 atkvæðum af 147 mögulegum. Ásamt Guðna var Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, í kjöri og fékk hann 26 atkvæði. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, en hann ávarpaði þingið.
Annar keppnisdagur í Sarajevo - Dagskrá
Í dag kl.12.10 að íslenskum tíma mun Baldur Vilhelmsson keppa í úrslitum á snjóbretti (slope style) á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Sarajevo og Austur-Sarajevo. Hann varð efstur í sínum riðli undankeppninnar í gær með einkunnina 89.67. Baldur verður einn af tólf sem keppa til úrslita í greininni.
Sarajevo 2019 - Fyrsta keppnisdegi lokið
Nú er fyrsta keppnisdegi íslenska liðsins á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Sarajevo og Austur-Sarajevo lokið. Veður hefur haft áhrif á keppni dagsins. Í byrjun dags rigndi en fór að snjóa upp úr hádeginu, hafði það í för með sér tafir á nokkrum keppnisstöðum.
Glæsileg setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar
Setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fór fram í gærkvöldi. Aron Máni Sverrisson, keppandi í alpagreinum, var fánaberi Íslands á setningarhátíðinni. Hægt er að sjá setningarhátíðina á facebook síðu EYOWF hér. Íslendingar eiga 12 keppendur á hátíðinni. Með fréttinni má sjá mynd af hópnum á leið á setningarhátíðina og mynd af Aroni Mána Sverrissyni fánabera. Fleiri myndir má nálgast hér á myndasíðu ÍSÍ og munu fleiri myndir hlaðast þar inn á meðan á hátíðinni stendur.
Setningarhátíð EYOWF í kvöld
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar er nú haldin í fjórtánda sinn, að þessu sinni í Sarajevó og Austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu. Setningarhátíð leikanna fer fram í kvöld og lokahátíð leikanna fer fram kvöldið 16. febrúar.
Eitt ár frá PyeongChang 2018
Vetrarólympíuleikarnir fóru fram í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Í dag er eitt ár frá setningarhátíð leikanna. Fulltrúar Íslands á leikunum voru Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason í alpagreinum, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen í skíðagöngu.
Fylgstu með íslenskum keppendum EYOWF á SnapChat
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Sarajevó og austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu 9. - 16. febrúar. Íslendingar eiga 12 keppendur á hátíðinni, auk þjálfara og flokksstjóra, dómara, sjúkraþjálfara og aðalfararstjóra.
Námskeið í Ólympíu
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 1.- 15. júní n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið „Olympic Diplomacy and Peace?“
Síðasti dagur skráningar í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Vorfjarnám 1. og 2. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 11. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.
Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar
Ný persónuverndarlög (GDPR) - kynning og fræðsla á vegum ÍSÍ
ÍSÍ hefur, í samstarfi við Advice/Advania, unnið leiðbeiningarpakka fyrir íþróttahreyfinguna vegna nýrra laga um persónuvernd (GDPR), þar sem tekið er á flestum þeim hlutum sem sérsambönd ÍSÍ, íþróttahéruð og íþrótta- og ungmennafélög þurfa að huga að í kjölfar breytinga á persónuverndarlöggjöfinni.