Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Ekki harka af þér höfuðhögg!
Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag, 8. mars, og hafa fjöldagöngur verið boðaðar víða um heim af því tilefni. Lesa má meira um daginn á vefsíðu Kvennasögusafns Íslands hér.
PyeongChang 2018 - Sögur keppenda
100 dagar í Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn þann 15. júní 2019. Fyrsta Kvennahlaupið var haldið 30. júní árið 1990 í Garðabæ og var það haldið í tengslum við íþróttahátíð ÍSÍ en segja má að viðburðurinn sé fyrir löngu orðinn ómissandi hjá konum á öllum aldri. Það sem gerir hlaupið líka svo sérstakt, að þetta er ekki einn viðburður á einum stað heldur er hlaupið á meira en 80 stöðum um allt land sem og erlendis.
Afrekssjóður ÍSÍ styrkir Karatesamband Íslands
Ólympíulið flóttafólks
Næstu Ólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Á leikunum munu 11.000 íþróttamenn keppa í 33 íþróttagreinum. Fimm íþróttagreinum hefur verið bætt við keppnisdagskrána frá síðustu leikum sem fóru fram í Ríó í Brasilíu 2016, en það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun. Sjá má íþróttagreinarnar sem keppt verður í hér og dagskrá leikanna má sjá hér.
Hetjur Ólympíuleika í þáttaröð á Ólympíustöðinni
Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum og býður upp á þáttaraðir tileinkaða íþróttum og íþróttafólki allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttafólk og þeirra leið að meiri árangri. Árið 2017 hóf Ólympíustöðin göngu þáttanna „Goðsagnir lifa“ (Legends Live On), en í fyrstu þáttaröðinni var fjallað um hetjur Ólympíuleika eins og fimleikakonuna Nadia Comaneci, sundmanninn Ian Thorpe og snjóbrettakappann Shaun White. Nú hefur ný þáttaröð litið dagsins ljós þar sem fylgjast má með hetjum Ólympíuleikanna eftir íþróttaferilinn og á nýjum starfsvettvangi. Fyrsti þáttur, sem kom út í lok febrúar sl., fjallar um franska skíðakappann og gullverðlaunahafa á Ólympíuleikunum í Albertville árið 1992 Edgar Grospiron en hann starfar nú sem fyrirlesari. Fjallað er um hvernig hann notar nú reynslu sína úr íþróttaheiminum til þess að hvetja ungt íþróttafólk áfram. Skilaboð hans eru skýr: „Það sem ég vil segja er mjög einfalt, þetta snýst allt um áhuga og innri hvöt.“
Ársþing Glímusambands Íslands
Ársþing Glímusambands Íslands (GLÍ) fór fram laugardaginn 2. mars sl. Þingið gekk vel fyrir sig og meðal þess sem var rætt um var staða glímunnar og hugmyndir um hvernig hægt er að bæta hana með t.d. keppni á dýnum í fullorðinsflokki. Þinggerðina má sjá hér. Ársþing Kraftlyftingasambands Íslands
Ársþing Kraftlyftingasambands Íslands var haldið 23. febrúar síðastliðinn í fundarsölum ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Góð mæting var á þingið sem var stýrt af Valdimar Leó Friðrikssyni formanni UMSK og Sigurjóni Péturssyni fyrrverandi formanni Kraftlyftingasambandsins. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sem verið hefur formaður sambandsins síðastliðin tvö ár, gaf ekki áfram kost á sér og var Gry Ek Gunnarsson kjörin nýr formaður sambandsins til eins árs. Auðunn Jónsson, Inga María Henningsdóttir og Þórunn Lilja Vilbergsdóttir voru kjörin í stjórn til tveggja ára. Á þinginu voru samþykkt ný heildarlög fyrir sambandið. Hægt er nálgast þinggerð og reikninga hér á vefsíðu sambandsins.
Evrópuleikar 2019 - Minsk
Gísli og Úlfur sæmdir Gullmerki ÍSÍ
Þing Siglingasambands Íslands (SÍL) var haldið laugardaginn 23. febrúar sl. í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Þingforseti var Guðrún Inga Sivertsen og stjórnaði hún þinginu af mikilli röggsemi. Garðar Svansson var fulltrúi ÍSÍ á þinginu. Hann flutti kveðju forseta, framkvæmdastjórnar og starfsfólks ÍSÍ og fór yfir helstu verkefni sem framundan eru hjá ÍSÍ. Við flutning skýrslu stjórnar kom fram að sambandið hafi sett mikið starf og fjármagn í fræðslu, þjálfun og keppni á starfsárinu.