Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Heiðurshöll ÍSÍ
Ólympíustöðin sýnir frá íþróttaviðburðum
Reykjavíkurmaraþon - Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar
Alþjóðaskólinn tók þátt í áskorun Smáþjóðaleikanna
Smáþjóðaleikarnir fóru fram í San Marínó 29. maí til 3. júní sl. Gestgjafar leikanna sendu áskorun til þátttökuþjóðanna sem fólst í tengja Smáþjóðaleikana og grunnskóla landsins.
Aldrei lognmolla í íþróttahreyfingunni
Sumaríþróttagreinarnar eru nú í fullum gangi og framundan eru spennandi mót og viðburðir. Kvennalandsliðið í blaki stóð sig frábærlega á Evrópumóti smáþjóða en þær stóðu uppi sem sigurvegarar og veitir sá sigur þeim þátttökurétt í Evrópukeppni landsliða. Er það í fyrsta skipti sem íslenskt landslið í blaki öðlast keppnisrétt í riðlakeppni EM.
ÍSÍ fréttir
Evrópuleikarnir 2019
Borgin Minsk í Hvíta-Rússlandi virðist vera vel í stakk búin til þess að halda Evrópuleikana 2019. Nokkur stórmót hafa verið haldin í Minsk síðastliðin ár, meðal annars ýmis Heimsmeistaramót og Evrópumeistaramót og eru íþróttaleikvangar og aðrar aðstæður til íþróttakeppni til fyrirmyndar.
Móttaka til heiðurs landsliði kvenna í blaki
Blaksamband Íslands hélt móttöku í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær, til heiðurs kvennalandsliðinu og sögulegs árangurs þess á Evrópumóti smáþjóða. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ, ávarpaði landsliðið og gesti í móttökunni og bar þeim hamingjuóskir frá forseta og framkvæmdastjórn ÍSÍ. Hún færði einnig Fríðu Sigurðardóttur fyrirliða liðsins blómvönd en þetta var síðasta mót Fríðu með kvennalandsliði Íslands í blaki.Ólympíudagurinn 23. júní
Þann 23. júní var Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Í tilefni af afmælisdeginum er fólk hvatt til þess að hreyfa sig og takast á við nýjar áskoranir.
Golf og ruðningur áfram á Ólympíuleikum
Þessa dagana eru allar línur að skýrast hvað varðar Ólympíuleikana í Tókýó 2020. Einnig standa skipuleggjendur Ólympíuleikanna í París og LA í ströngu, því borgirnar keppast um að halda leikana 2024. Útlit er fyrir að allar 28 íþróttagreinarnar sem keppt var í á Ólympíuleikunum í Ríó 2016 verði einnig keppnisgreinar á leikunum í Tókýó 2020 og á leikunum 2024, en nýlega staðfesti framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar endanlega þá viðburði sem fara munu fram á leikunum í Tókýó. Viðburðadagskráin er töluvert breytt frá fyrri leikum, en þessi nýja dagskrá markar stórt skref í þróun Ólympíuleikanna. Breytingin verður til þess að hlutur kynjanna á leikunum jafnast, íþróttafólki fækkar og þar með minnkar umhverfisspor leikanna.
Felix námskeið um allt land
Elías Atlason starfsmaður ÍSÍ sér um Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ, ásamt öðrum tölvumálum hjá ÍSÍ. Hann hefur nú heimsótt öll héruð á landinu, samtals 25, og haldið námskeið í Felix með héraðssamböndum og deildum þeirra. Námskeiðin fóru fram í mars og apríl 2017. Þátttaka hefur verið misgóð en það hafa samtals 202 manns mætt á námskeiðin. Besta mætingin var á Siglufirði, Akureyri og hjá HSK. Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir sérsambönd ÍSÍ.
IOC fjallar um fæðubótarefni
Nýverið fór fram þriggja daga fundur í höfuðstöðvum Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) um fæðubótarefni, áhrif þeirra á heilsu og frammistöðu íþróttafólks og hættuna á lyfjamisnotkun. Fundinn sátu leiðandi sérfræðingar á sviði læknisfræði og vísinda sem heilbrigðisráðið innan Alþjóðaólympíunefndarinnar (Medical and Scientific Commission) fékk til liðs við sig til að vekja athygli og móta stefnu á málefninu.