Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Síðasti keppnisdagurinn í Lífshlaupinu
ÍSÍ endurnýjar þjónustusamning við Vodafone
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur endurnýjað þjónustusamning sinn við Vodafone. Við það tækifæri fékk framkvæmdastjóri ÍSÍ einnig afhenta síma sem Vodafone og Tæknivörur (Samsung) létu ÍSÍ í té til að nota í verkefnum ÍSÍ. Fánaberi á lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi
Nú líður að lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi en hún hefst kl. 16:00 í dag, að íslenskum tíma.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur valið Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur til að vera fánaberi íslenska Ólympíuhópsins á lokahátíðinni en Helga María, sem er aðeins 18 ára, stóð sig afar vel á leikunum.
Keppni í svigi karla í Sochi hefst kl. 12:45
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands leitar að verkefnastjóra kynningarmála
Erla og Helga María stóðu sig vel í sviginu
Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir luku keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í gær þegar þær tóku þátt í svigi kvenna. Helga María lenti í 34. sæti og Erla í 36. sæti og geta þær svo sannarlega vel við unað.Fyrri umferð í svigi kenna lokið
Að lokinni fyrri ferðinni í svigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi þá er Helga María Vilhjálmsdóttir í 43. sæti og Erla Ásgeirsdóttir í 45. sæti. Helga María kom í mark á tímanum 1:02,69 mínútum og var rétt rúmum tíu sekúndum frá Mikaelu Shiffrin sem er efst eftir fyrri ferðina en Erla kom í mark á tímanum 1:03,55 mínútum. Svig í Sochi
Í dag keppa Erla Ásgeirsdóttir og Helga María Vilhjálmsdóttir í svigi kvenna. Fyrri ferðin hefst kl. 12:45 og seinni ferðin kl. 16:15 að íslenskum tíma. Keppni lokið í stórsvigi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Fyrri umferð stórsvigs karla lokið í Sochi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa lokið fyrri ferð í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í dag. Einar Kristinn er í 63. sæti og Brynjar Jökull í 65. sæti en seinni ferðin hefst um kl. 10:30. Íþróttaleiðtogar hittast í Sochi
Á Vetrarólympíuleikunum í Sochi eru samankomnir allir helstu forsvarsmenn íþrótta- og ólympíuhreyfingarinnar á heimsvísu.
Dvöl þeirra á leikunum er meðal annars notuð til þess að funda, mynda og styrkja tengslanet og ræða ýmis hagsmunamál hreyfingarinnar.
Lúðvík Georgsson heiðraður á ársþingi KSÍ
Á ársþingi KSÍ í Hofi á Akureyri um síðastliðna helgi var Lúðvík Georgsson sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir frábær störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ, sem sæmdi Lúðvík krossinum.