Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Nýtt frjálsíþróttahús í Kaplakrika
Sunnudaginn 18. maí var nýtt og glæsilegt frjálsíþróttahús í Kaplakrika vígt. Tilkoma frjálsíþróttahússins, sem er bjart og einstaklega vel heppnað, er mikill áfangi fyrir frjálsíþróttir og íslenskt frjálsíþróttafólk. Margt var um manninn á vígsluhátíðinni og átti fólk þar ánægjulega stund. Gestir og íþróttafólk tók þátt í að hlaupa, ganga eða skokka vígsluhringinn og augljóst var að öllum leist vel á nýju aðstöðuna. Á eftir athöfninni hófst fyrsta frjálsíþróttamótið í húsinu.Sumarfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ
Framundan er sumarfjarnám í þjálfaramenntun ÍSÍ á öllum þremur stigum námsins sem nú eru í boði. Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 23. júní næstkomandi. Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar, ségreinahluta námsins taka nemendur svo hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ. Námið tekur átta vikur og skila nemendur verkefni(um) í hverri viku og taka auk þess nokkur krossapróf. Þetta nám hefur verið afar vinsælt undangengin ár og hafa nemendur komið frá fjölmörgum íþróttagreinum og verið búsettir víða um landið. Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur. Nemendur geta því í raun verið staddir hvar sem er ef þeir aðeins hafa tölvutengingu. Skemmtilegt spjallsvæði er í náminu og er það mikið notað. Þar bera nemendur saman bækur sínar og læra hver af öðrum.
Skráning er á namskeid@isi.is til fimmtudagsins 19. júní.
Námskeiðsgjald er kr. 25.000.- og eru þá öll námskeiðsgjöld innifalin og send á heimilisföng þátttakenda. Nanjing 2014 - Rafræna kyndilhlaupið á Íslandi
Í tilefni af Ólympíuleikum ungmenna var ólympíueldurinn tendraður við hátíðlega athöfn þann 30. apríl í Aþenu í Grikklandi. Á sama tíma kom út nýtt smáforrit fyrir tölvur og síma sem kallast Rafræna kyndilhlaupið. Í leiknum geta kyndilberar farið um 204 lönd og svæði sem taka þátt í leikunum í ágúst á 98 dögum. Hugmyndin er sú að veita ungmennum út um allan heim það tækifæri að vera kyndilberar, að þau hjálpist að við að fara með eldinn í kringum heiminn og aftur til Nanjing og breiði þannig út boðskap ólympíuandans.Aðalfundur Smáþjóðaleikanna er um helgina
Ný heimasíða - kvennahlaup.is
Kvennahlaupið er komið með nýja heimasíðu, www.kvennahlaup.is. Þar er að finna leiðbeiningar fyrir alla, þá sem langar að taka sín fyrstu skref í átt að reglulegri hreyfingu og þá sem eru vanir hreyfingu en vilja meiri fjölbreytni. Þar er einnig að finna æfingaáætlanir, ýmis konar stuðningsefni og lista yfir göngu- og hlaupahópa víðsvegar um landið sem starfa í tengslum við Kvennahlaupið. Á heimasíðunni er einnig hægt að Viðtal við Viðar Halldórsson íþróttafélagsfræðing
Skipulagt íþróttastarf hefur mikið forvarnargildi
Hjólað í vinnuna bíður í kaffi
Kynning Viðars Halldórssonar á niðurstöðum framhaldsskólakönnunar
Góður rekstur hjá UDN
Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Dalamanna og norður Breiðfirðinga (UDN) var haldið í félagsheimilinu Árbliki þann 6. maí s.l. Vel var mætt á þingið og voru ýmis mál þar tekin fyrir. Rekstur UDN hefur gengið vel og skilaði það hagnaði á síðasta ári. Í ársbyrjun var undirritaður samstarfssamningur á milli UDN og Dalabyggðar sem án efa mun styrkja starf sambandsins til muna.Ragnar Kristinn Bragason heiðraður á þingi HSS
Ársþing Héraðssambands Strandamanna fór fram í Félagsheimilinu á Hólmavík 30. apríl sl. Á þinginu voru mættir fulltrúar frá öllum aðildarfélögum sambandsins, auk gesta. Góður andi var á þinginu og vel unnið í þingnefndum Lög sambandsins hafa verið til endurskoðunar frá síðasta þingi og voru samþykktar nokkrar breytingar á þeim er lúta að því að uppfæra þau í takt við tímann.Helgi Þór endurkjörinn formaður TSÍ
Ársþing Tennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 29. apríl sl. Helgi Þór Jónasson var kjörinn formaður sambandsins fjórða árið í röð. Þrándur Arnþórsson og Bragi Leifur Hauksson voru kosnir í aðalstjórn til tveggja ára.