Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Óbreyttar sóttvarnaráðstafanir til 9. desember

01.12.2020

Á vef heilbrigðisráðuneytis var rétt í þessu birt frétt þar sem fram kemur að heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi. Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum í augnablikinu vegna þróunar faraldursins síðustu daga. Áður hafði verið vonast til þess að einhverjar tilslakanir yrðu gerðar 2. desember nk.

Í frétt ráðuneytisins kemur fram að í ljósi fjölgunar smita og hópsýkinga ásamt því að fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefnir í línulegan vöxt og hugsanlega veldisvöxt þá sé tillaga sóttvarnalæknis að engar breytingar verði gerðar á gildandi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e. takmörkunum á samkomum og skólastarfi næstu eina til tvær vikur. Við endurskoðun sóttvarnaráðstafana, sem hefjast þegar í stað, verður meðal annars horft til þess hvort að tilefni sé til að gera tilslakanir á landsbyggðinni umfram höfuðborgarsvæðið í samræmi við hugleiðingar sóttvarnalæknis í minnisblaði dagsettu í dag, 30. nóvember.

Þessi tíðindi þýða, því miður, að engar breytingar verða á takmörkunum á íþróttastarfi til 9. desember nk.

Æfingar barna á leik- og grunnskólaaldri f. 2005 og síðar eru heimilar jafnt úti sem inni, það á einnig um sundæfingar.

Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu í íþróttastarfi eins og er í grunnskólastarfi.Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi.Leikskólabörn og börn í 1.-4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.-10. bekk að hámarki 25. saman. Grímuskylda þjálfara gildir gagnvart börnum í 8.-10. bekk sé ekki mögulegt að viðhafa 2m fjarlægðarreglu. Börn í 1.-7. bekk eru undanþegin grímuskyldu, sé ekki unnt fyrir börn í 8.-10. bekk að viðhafa 2m fjarlægðarreglu utan æfingasvæðis ber þeim að nota grímu.

Áfram gildir að íþróttir fullorðinna, þar með talið æfingar og keppni, hvort sem er innandyra eða utandyra, með snertingar eða án, eru óheimilar. Einstaklingsbundnar æfingar, án snertingar eru heimilar svo sem útihlaup og sambærileg hreyfing.

Minnisblað sóttvarnalæknis, dagsett 29. nóvember 2020.

Minnisblað sóttvarnalæknis, dagsett 30. nóvember 2020.

 

Gildandi reglugerðir voru ekki birtar með frétt ráðuneytisins en hér fyrir neðan eru slóðir á þær reglugerðir sem birtar voru 17. nóvember sl. og tóku gildi 18. nóvember sl.

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsótta, sem gildir frá 18. nóvember 2020.

Breyting á reglugerð um takmarkanir í skólastarfi sem gildir frá 18. nóvember 2020.

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar sem gildir frá 18. nóvember 2020.