Fréttir frá Sumarólympíuleikum
Eitt ár til Ólympíuleikanna í Tókýó
IOC og WHO styrkja samstarfið
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafa nú undirritað nýjan samning sem felur í sér samvinnu um heilbrigðari lífsstíl fólks í gegnum íþróttir. Samninginn undirrituðu Thomas Bach forseti IOC og Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri WHO þann 16. maí sl. í höfuðstöðvum WHO í Genf. Bach sagði við tilefnið að mikilvægi íþrótta og líkamsræktar fyrir andlega og líkamlega heilsu hafi orðið enn ljósara síðastliðna mánuði á tímum kórónaveirunnar.
IOC veitir styrki vegna Covid faraldursins
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) sendi frá sér fréttatilkynningu á dögunum varðandi styrki sem nefndin ætlar að veita vegna Covid faraldursins og afleiðinga hans á alþjóðaíþróttahreyfinguna. IOC áætlar að veita þurfi allt að 117 milljörðum króna í sérstakan sjóð til að mæta tapi vegna frestunar Ólympíuleikanna sem fara áttu fram í Tókýó í júlí nk. Leikunum hefur verið frestað um eitt ár og hefur það haft töluverðar fjárhagslegar afleiðingar fyrir skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó. IOC tilkynnti að skipulagsnefndin fái 95 milljarða króna til að takast á við kostnað sem fylgir frestuninni og til að bæta upp tap sem orðið hefur vegna hennar. Til alþjóðasérsambanda og ólympíunefnda fara 22 milljarðar króna svo hægt sé að halda áfram undirbúningi vegna Ólympíuleika, stuðningi við íþróttafólk og áframhaldandi þróun á íþróttahreyfingunni. Samböndin geta sótt um að fá hluta fjárins að láni ef þau eiga í lausafjárvandræðum vegna faraldursins. Ólympíusamhjálpin hefur einnig aukið við styrkveitingar sínar til íþróttafólks um 2 milljarða króna, en 1600 íþróttamenn frá 185 Ólympíunefndum eru á styrk hjá Ólympíusamhjálpinni ásamt ólympísku liði flóttafólks.
Íþróttamannanefnd IOC hvetur íþróttafólk áfram
Íþróttamannanefnd Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) gaf út yfirlýsingu á dögunum þar sem nefndin fagnaði og studdi að fullu ákvörðun IOC, Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) og skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í Tókýó 2020 um að fresta Ólympíuleikunum í Tókýó um eitt ár, eða til 23. júlí 2021 og Paralympics um eitt ár, eða til 24. ágúst 2021.
Ný dagsetning Ólympíuleikanna
Ólympíuleikar í Tókýó
Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, Thomas Bach, hélt í dag fjarfund með fulltrúum fjölmargra Ólympíunefnda, þar á meðal ÍSÍ.
Kveikt á Ólympíukyndlinum
Fundur IOC og Ólympíunefnda Evrópu
Valdís í 7. sæti í Suður-Afríku
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur, stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í júlí nk. Valdís keppir út um allan heim um þessar mundir og nú síðast í Suður-Afríku sl. helgi þar sem hún náði sínum besta árangri á árinu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og var Valdís í baráttu um sigurinn en endaði í 7.-13. sæti mótsins á tveimur höggum undir pari. Alice Hewson frá Englandi sigraði mótið á fimm höggum undir pari. Er þetta í fjórða skipti sem Valdís Þóra er á meðal tíu efstu kylfinga á Evrópumótaröðinni.
Guðlaug Edda nælir í dýrmæt Ólympíustig
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarmeistari, stefnir á að taka þátt í ólympískri þríþraut á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020. Í ólympískri þríþraut eru syntir 1500 metrar, 40 kílómetrar hjólaðir og 10 kílómetrar hlaupnir.
5 mánuðir til Ólympíuleika 2020
Nú eru fimm mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 24. júlí 2020. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 9. ágúst.
6 mánuðir til Ólympíuleika í Tókýó
Næstu Ólympíuleikar fara fram í Tókýó 24. júlí til 9. ágúst 2020. Í dag er því fagnað að hálft ár er þar til setningarhátíð Ólympíuleikanna fer fram. Skipuleggjendur leikanna halda því fram að um sé að ræða nýjungagjörnustu Ólympíuleika í sögunni því á þeim verður meðal annars hægt að sjá bifreiðar drifnar áfram af vetni og ný tæki sem geta þýtt fjölmörg tungumál yfir á önnur tungumál ásamt mörgu öðru. Ólympíuleikvangurinn er tilbúinn til notkunar, en hann var byggður frá grunni í japönskum stíl og að mestu leyti úr viðarefni. Mikil áhersla er á sjálfbærni á leikunum og eru verðlaunin meðal annars búin til úr gömlum farsímum japansks almennings. Gullverðlaunin eru alltaf eftirsóttust, en aðeins 339 íþróttamenn munu vinna gull á leikunum. Í fjórum íþróttagreinum hefur aldrei áður verið keppt og því verða fyrstu gullverðlaunin veitt í þeim greinum á Ólympíuleikum, það eru greinarnar karate, hjólabretti, íþróttaklifur og brimbretti.