Stefnumótunarfundir íþróttahreyfingarinnar - Stórhöfuðborgarsvæðið
13.04.2026
Stefnumótunarfundir íþróttahreyfingarinnar halda áfram og nú er komið að stórhöfuðborgarsvæðinu. Á undanförnum vikum hafa verið haldnir opnir stefnumótunarfundir víða um land þar sem fulltrúar íþróttahéraða, íþróttafélaga og annarra hagaðila ræddu stöðu og framtíðarsýn íþróttastarfsins. Markmið fundanna er að skilgreina helstu áherslur í grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum og móta þannig sameiginlega stefnu fyrir hreyfinguna. Þessir fundir hafa reynst afar gagnlegir og útkoman nýtist vel í þeirri vinnu sem framundan er.
Fundurinn fyrir stórhöfuðborgarsvæðið verður haldinn 16. apríl kl. 17:00–19:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Nauðsynlegt er að bæði sérsambönd og íþróttahéruð sendi fulltrúa á fundinn. Einnig er óskað eftir þátttöku íþróttafélaganna sjálfra, sérstaklega þeirra stærri. Þeim gefst þar tækifæri til að koma áherslum sínum og sjónarmiðum á framfæri. Óskum við eftir því að þið (íþróttahéruð og sérsambönd) hjálpið okkur við að fá fulltrúa sem flestra íþróttafélaga- og deilda til að sækja þennan viðburð.
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig fyrirfram þar sem hafa þarf yfirsýn yfir fjölda til að tryggja viðeigandi aðstöðu.
Skráning: https://bit.ly/4vn81lD