Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
14

Héraðssambandið Hrafna-Flóki viðurkennt sem Fyrirmyndahérað ÍSÍ

13.04.2026

 

Héraðssambandið Hrafna‑Flóki hlaut viðurkenningu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem Fyrirmyndarhérað á ársþingi íþróttahéraðsins sem haldið var á Patreksfirði föstudaginn 10. apríl síðastliðinn. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, afhenti Birnu Hannesdóttur, formanni HHF, viðurkenninguna að viðstöddum tæplega fjörutíu þingfulltrúum.

HHF hefur skilað inn öllum tilskyldum gögnum til ÍSÍ og uppfyllir þau viðmið sem sett eru fyrir Fyrirmyndarhérað. Þar kemur meðal annars fram að héraðssambandið hyggst hvetja og styðja aðildarfélög sín til að sækja um viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélög ÍSÍ og þannig efla faglegt og markvisst íþróttastarf á sunnanverðum Vestfjörðum.

Við afhendinguna lagði Birna F. S. Hannesdóttir, formaður HHF, áherslu á mikilvægi þess að halda áfram að byggja upp öflugt og framtíðarmiðað íþróttastarf:

„Við viljum gera gott starf enn betra og markvissara til allrar framtíðar litið. Fyrirmyndarhérað ÍSÍ er okkur leiðarljós í þeirri vegferð og lykill að því að byggja upp sjálfbært íþróttastarf sem hefur raunveruleg og varanleg áhrif á lífsgæði fólks og framtíð sunnanverðra Vestfjarða,“ sagði Birna af þessu tilefni.

Með þessari viðurkenningu bætist HHF í hóp íþróttahéraða sem leggja markmiðasetningu, gæðaviðmið og fagleg vinnubrögð í forgrunn og vinna að því að efla íþróttir og samfélagslegt starf í sinni heimabyggð.

 

Myndir með frétt