Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
10.04.2026 - 10.04.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
10

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga

09.04.2026

 

ÍSÍ hefur úthlutað styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna ferðakostnaðar íþrótta- og ungmennafélaga vegna þátttöku í fyrirfram skilgreindum styrkhæfum mótum ársins 2025.
Til úthlutunar að þessu sinni voru 123,9 milljónir króna.

Til sjóðsins bárust 233 umsóknir frá 116 íþrótta- og ungmennafélögum úr 22 íþróttahéruðum vegna 2.953 ferða í 26 íþróttagreinum.

Heildarupphæð umsókna var 694.561.187,- krónur en þess má geta að umsækjendur skrá einungis beinan ferðakostnað í umsóknir, ekki gistingu eða uppihald. Gistikostnaður er valkvæð skráning í umsóknir til sjóðsins og var skráður gistikostnaður í umsóknum um 129 milljónir króna.

Styrkirnir eru greiddir út beint til viðkomandi íþrótta- og ungmennafélags, skv. umsóknum. Umsækjendur geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð úthlutun styrkja pr. ferð.

Unnið er að uppfærslum í umsóknarkerfinu og verður opnað fyrir nýtt umsóknartímabil í kerfinu að þeim loknum.

Vinnuhópur ÍSÍ um Ferðasjóð íþróttafélaga er bakland fyrir skrifstofu ÍSÍ varðandi málefni þessa mikilvæga sjóðs. Þau sem sitja í vinnuhópnum eru Heimir Örn Árnason formaður, Árni Ólason, Engilbert Olgeirsson, Jóhann Króknes Torfason, Helga Sigrún Þórsdóttir og Trausti Gylfason. Skrifstofa ÍSÍ annast yfirlestur umsókna og vinnur tillögu að úthlutun í samræmi við samþykktar forsendur og í samráði við vinnuhópinn, sem síðan er lögð fyrir framkvæmdastjórn ÍSÍ til umfjöllunar og samþykktar. Sjóðurinn hefur fengið árlegt framlag af fjárlögum Alþingis síðan árið 2007 og er haft samráð við mennta- og barnamálaráðuneytið um allar breytingar á grunnforsendum útreiknings styrkja.

Framlag ríkisins til sjóðsins skiptir íþróttahreyfinguna gríðarlega miklu máli enda ferðakostnaður íþróttahreyfingarinnar stór þáttur í rekstri flestra íþróttafélaga, ekki síst á landsbyggðinni. Þó aðeins hluti mótahalds í landinu sé styrkhæfur í sjóðnum þá endurspegla umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga gríðarlegt umfang ferðalaga og ferðakostnaðar í íþróttastarfinu á landsvísu og þær miklu áskoranir sem íþróttafélögin í landinu, og þá aðallega í dreifðari byggðum landsins, þurfa að mæta í rekstrinum til að veita iðkendum sínum tækifæri til þátttöku í íþróttamótum.

Upplýsingasíða sjóðsins.

Skipting úthlutunar pr. íþróttahérað:

Ár

Íþróttahérað.

Greiddur

% af heild

2025

HSB

65.364

0.05

2025

HSS

97.774

0.08

2025

HHF

126.959

0.10

2025

UMSB

181.184

0.15

2025

USVH

282.098

0.23

2025

ÍS

402.589

0.32

2025

ÍA

877.088

0.71

2025

UMSE

1.223.328

0.99

2025

UÍF

1.358.754

1.10

2025

ÍRB

1.851.684

1.49

2025

HSH

1.916.478

1.55

2025

HSK

3.982.194

3.21

2025

HSÞ

4.142.979

3.33

2025

USÚ

5.087.648

4.11

2025

ÍBH

5.597.396

4.52

2025

UMSS

6.319.099

5.10

2025

ÍBV

8.324.354

6.72

2025

HSV

8.899.506

7.18

2025

UMSK

13.069.031

10.55

2025

ÍBR

13.544.922

10.93

2025

UÍA

16.208.341

13.08

2025

ÍBA

30.357.829

24.50

 

Samtals

123.898.599

 

 

Skipting úthlutunar pr. íþróttagrein: