Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

2

Raddir ungs fólks - samtal um íþróttir

02.03.2026

 

RADDIR UNGS FÓLKS er samtal ungs fólks á aldrinum 15 - 25 ára við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar, um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fara fram á átta stöðum um allt land nú á vormánuðum 2026. Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrir fundunum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa á hverju svæði.

Fyrsti fundurinn fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum föstudaginn 6. mars á milli kl. 16:00 - 18:00. Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér:  Skráning!

Markmið samtalsins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á ofangreindum aldri og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Vonast er eftir að niðurstöður endurspegli raunverulegar þarfir á hverjum stað. Allar niðurstöður fundanna verða nýttar í heildstæðri sttefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ styrkjakerfinu og byggir á þeirri sýn að aðstæður og áskoranir ungs fólks eru ólíkar eftir landshlutum.

Ungmenni á aldrinum 15 - 25 ára eru hvött til að nýta tækifærið, mæta á fundina og láta rödd sína heyrast!

Búið er að ákveða fundartíma fyrir Raddir ungs fólks í öðrum landshlutum sem hér segir:

  • Norðurland vestra:  Fjölbrautaskóli Norðurlands - 23. mars kl. 13:00 - 15:00. Skráning á fundinn hér.
  • Norðurland eystra: Íþróttahöllin á Akureyri, 2. hæð - 24. mars kl. 12:00 - 14:00. Skráning á fundinn hér.
  • Vestfirðir:  11. apríl (staðsetning og tímasetning birtist innan tíðar).