Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
3

Málþingið Allir með - Ferðin hingað og ferðalagið framundan

03.02.2026

 

Málþingið Allir með – Ferðin hingað og ferðalagið framundan fór fram 30. janúar 2026 í Minigarðinum í Skútuvogi. Þar komu saman foreldrar, fagfólk og fulltrúar íþróttahreyfingarinnar til að ræða hvernig tryggja megi að öll börn hafi raunverulegan aðgang að íþróttum.

Á málþinginu var farið yfir stöðuna í dag, niðurstöður rannsókna um þátttöku fatlaðra barna og þær áskoranir sem bæði fjölskyldur og íþróttafélög standa frammi fyrir. Kynnt voru verkefni sem þegar eru í gangi innan Allir með og hvernig megi styrkja þjálfara, bæta upplýsingagjöf og ryðja úr vegi hindrunum svo fleiri börn geti tekið þátt á sínum forsendum.

Í lok dags tóku þátttakendur þátt í léttum táknrænum gjörningi sem átti að minna á sameiginlega ábyrgð á framhaldinu. Undir sætunum fundu gestir litla töfrasprota sem þeir kveiktu á og lyftu upp – einfalt og skemmtilegt tákn um að halda verkefninu áfram og vinna saman að því að íþróttir standi öllum börnum opnar.

Hægt er fræðast meira um verkefnið á heimasíðu þess hér 

Myndir: Magnús Orri Arnarson

 

Myndir með frétt