Landsátakinu Syndum lauk 30. nóvember
Landsátakinu Syndum lauk 30. nóvember síðastliðinn en átakið hófst með setningu í Ásvallalaug mánudaginn 3. nóvember. Um er að ræða sameiginlegt átak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Sundsambands Íslands (ÍSS), sem vilja með þessu hvetja landsmenn til meiri hreyfingar í gegnum sundið.
Syndum er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu, sem fagnaði 10 ára afmæli í ár en markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Syndum er styrkt af Evrópuráðinu - European Commission
Til þess að taka þátt í átakinu skráðu þátttakendur sig til leiks á heimasíðu Syndum og skráðu metrana sem þeir syntu. Samtals lögðu landsmenn um 19.175,94 km að baki, sem samsvarar um 14,5 hring í kringum Ísland. Þetta er aðeins lakari þátttaka en 2024 þegar syntir voru um 24 hringir eða rúmlega 31.000 km.
Það voru níu grunnskólar sem tóku þátt í Syndum að þessu sinni. Skólarnir í Reykjavík voru Engjaskóli, Foldaskóli, Hamraskóli og Rimaskóli, en þess má geta að allir þessir skólar eru í Grafarvogi. Á Suðurlandi voru það Sunnulækjarskóli (450) og Stekkjarskóli á Selfossi og Kirkjubæjarskóli. Á norðurlandi var það Borgarhólsskóli á Húsavík (200). Sundfélögin sem tóku þátt vorur Sundfélag Hafnarfjarðar (170) og Sundfélagið Óðinn á Akureyri.
Þátttakendur af öllu landinu skráðu metrana sína í alls 58 laugum. Sú laug sem var með flesta skráða metra var Ásvallalaug í Hafnarfirði með 10.005,13 km. Sundfélag Hafnarfjarðar á sannarlega sinn þátt í að koma Ásvallalaug á toppinn en það voru auk sundgesta, 170 sundiðkendur sem skráðu metrana sína inn í kerfið. Virkilega vel gert og til hamingju Ásvallalaug með árangurinn!
Skráningareikur Syndum var í gangi á meðan átakið stóð yfir og fengu heppnir þátttakendur ýmist gjafabréf frá Craft eða Arena. Þann 1. desember voru svo 10 þátttakendur dregnir út sem fengu jóladagatal frá NIVEA. Hér má sjá alla vinningshafa.
ÍSÍ hvetur alla til að halda áfram að synda sér til heilubótar.
Syndum er styrkt af Evrópuráðinu - European Commission