Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
26

Setningarhátíð Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar 2025

21.07.2025

 

Setningarhátíð Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar (EYOF) fór fram í kvöld, sunnudaginn 20. júlí í Skopje, Norður-Makedóníu.

Fánaberar Íslands voru þau Laufey Helga Óskarsdóttir sem er keppandi í handknattleik og Kristján Ágúst Ármannsson sem er keppandi í borðtennis. Fulltrúar Íslands eru bæði að keppa á EYOF í fyrsta skipti.

Setningarhátíðin hófst þegar þátttakendur leikanna gengu fylktu liði inn í Jane Sandanski íþróttahöllina. Dagskráin var hin glæsilegasta þar sem fremsta tónlistar- og listafólk Norður-Makedóníu skemmti þátttakendum og gestum. 

Spyros Capralos, forseti Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC), ávarpaði viðstadda og undirstrikaði mikilvægi hátíðarinnar fyrir íþróttir og menningarleg tengsl ungs fólks. Hátíðin var formlega opnuð af forseta Norður-Makedóníu, frú Gordana Siljanovska-Davkova. Glæsileg skemmtidagskrá listafólks endurspeglaði kraft og fjölbreytileika evrópskrar æsku.

Fyrir áhugasama má fylgjast með leikunum í beinu streymi á EOCtv.org eða á Anoctv.

Myndir með frétt