Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Ársþing FRÍ 2020

16.10.2020

Þann 2. október sl. fór 62. ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Þingið var óvanalegt á margan hátt, en því hafði tvívegis verið frestað. Sóttvarnir voru í hávegum hafðar á þinginu, en því var einnig streymt beint. Að þessu sinni tók ársþingið aðeins einn dag, en ekki tvo líkt og áður.

Freyr Ólafsson formaður FRÍ bauð gesti velkomna og setti þingið. Þingforsetar voru kjörnir þeir Gunnlaugur Júlíusson og Gunnar Svavarsson, sem steig inn í fjarveru Bjargar Ágústsdóttur. Þingritarar voru kjörin þau Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Eiríkur Mörk Valsson. Góðir gestir ávörpuðu þingið en það voru þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Úlfar Linnet formaður frjálsíþróttadeildar FH og Hafsteinn Pálsson annar varaforseti ÍSÍ, en hann var einnig  fulltrúi ÍSÍ á þinginu.

Á þinginu voru þrír leiðtogar úr hreyfingunni til áratuga gerðir að heiðursfélögum FRÍ. Það voru þau Ragnheiður Ólafsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson og Þráinn Hafsteinsson.

Á þinginu voru afgreiddar 25 tillögur um reglugerða- og lagabreytingar. Vegna fyrirkomulags þings var mörgum vísað áfram til stjórnar eða starfsnefnda.

Á þinginu var kjörin ný stjórn og formenn nefnda sambandsins. Ný inn í aðalstjórn kemur Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, en áfram sitja Guðlaug Baldvinsdóttir, Gunnar Svavarsson og Kári Steinn Karlsson. Formaður sambandsins, Freyr Ólafsson, var endurkjörinn til næstu tveggja ára.

Á þinginu var einnig nýtt auðkennismerki Frjálsíþróttasambands Íslands kynnt sem sjá má hér.

Hér má sjá upptöku frá þinginu.