Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
21

Nýr formaður HNÍ

09.10.2020

Ársþing Hnefaleikasambands Íslands (HNÍ) fór fram 3. október 2020 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Breytingar lágu fyrir fund í lögum HNÍ er snéru að fjölda manns í stjórn og voru þær samþykktar. Einnig var samþykkt uppfærð Afreksstefna HNÍ til næstu tveggja ára. Engar breytingar voru gerðar á gjaldskrá HNÍ. Ársreikningur og fjárhagsáætlun voru samþykkt.

Ný stjórn var kjörin og var Almar Ögmundsson kjörinn nýr formaður sambandsins. Með honum voru endurkjörnar í stjórn Birna Árnadóttir og Steinunn Inga Sigurðardóttir. Nýir stjórnarmenn voru kjörnir Baldur Hrafn Vilmundarson og Jafet Örn Þorsteinsson. Þar með hætta í stjórn Árni Stefán Ásgeirsson varaformaður og Rúnar Svavarsson meðstjórnandi. Varamenn voru kosnar Ásdís Rósa Gunnarsdóttir og Áslaug Rós Guðmundsdóttir. Þær færa sig þar með úr störfum formanns og ritara.