Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Hjólað í vinnuna hefst 6. maí

20.04.2020

Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 6. - 26. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar á vefsíðu Hjólað í vinnuna 22. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 26. maí.

Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Þrátt fyrir sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu núna er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir um allt land geta nú farið að huga að því að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér. Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna.

Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær:

1. Vinnustaðakeppni, þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsfólks á vinnustaðnum s.s. ferð óháð fjölda kílómetra telur jafnt fyrir alla í aðalkeppninni.

2. Kílómetrakeppni, þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hinsvegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði. Það þarf að haka sérstaklega við ef ætlunin er að taka þátt í kílómetrakeppninni.

Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna.

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Nánari upplýsingar má finna á www.hjoladivinnuna.is ásamt síðum á Facebook og Instagram.