Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað þann 28. desember

27.12.2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands afhendir viðurkenningar til íþróttakvenna og íþróttamanna sérgreina íþrótta annað kvöld, þann 28. desember, í Silfurbergi í Hörpu. Hófið er haldið með Samtökum íþróttafréttamanna, sem velja Íþróttamann ársins 2019. Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV. Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 64. sinn en þjálfari og lið ársins í áttunda sinn.

Hægt er að fylgjast með hátíðinni á Instagram síðu ÍSÍ, @isiiceland, #Íþróttamaðurársins2019