Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Fulltrúar Íslands í Lausanne 2020

13.12.2019

Á fundi Framkvæmdastjórnar ÍSÍ þann 12. desember voru tilnefningar Skíðasambands Íslands (SKÍ) á þátttakendum á Vetrarólympíuleika ungmenna samþykktar. Við valið er farið eftir stigalista Alþjóða skíðasambandsins.

Skíðaganga:
Einar Árni Gíslason, keppandi
Linda Rós Hannesdóttir, keppandi
Vadim Gusev, flokksstjóri/þjálfari

Alpagreinar:
Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir, keppandi
Gauti Guðmundsson, keppandi
Grímur Rúnarsson, flokksstjóri/þjálfari

Fararstjóri á leikunum verður Örvar Ólafsson

Í fyrsta sinn verður keppni á leikunum skipt upp í fyrra og seinna tímabil. Keppni í alpagreinum fer fram á fyrra tímabili leikanna en keppni í skíðagöngu fer fram á því seinna. Leikarnir standa frá 9.-22. janúar. Á þeim 13 dögum sem keppnin fer fram eru 81 viðburður á dagskrá á átta keppnisstöðum. 1880 íþróttamenn munu taka þátt og kynjahlutfall er jafnt. 940 konur og 940 karlar, munu etja kappi á leikunum. Verða þetta fyrstu vetrarleikarnir á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar með jafnt kynjahlutfall keppenda.

Vefsíðu leikanna má sjá hér.

Um Ólympíuleika ungmenna
Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikarnir. Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001. Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram 2012 í Innsbruck í Austurríki og aðrir leikarnir í Lillehammer í Noregi 2016. Ísland hefur í bæði skiptin sent þátttakendur á leikana.