Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

USVH stefnir á að verða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

22.03.2019

78. Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga (USVH) var haldið miðvikudaginn 20. mars sl. í Félagsheimilinu á Hvammstanga. UMF. Kormákur sá að þessu sinni um framkvæmd þingsins. Góð mæting var á þingið en það mættu fulltrúar frá öllum aðildarfélögum, samtals 27 þingfulltrúar af þeim 32 sem áttu rétt til setu á þinginu. Miklar og góðar umræður voru á þinginu um starf sambandsins. Stjórn kynnti meðal annars Handbók USVH sem er hluti af því að USVH geti gerst Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á næstu vikum. Mjög vel var tekið í tillögu stjórnar USVH þar sem aðildarfélög voru hvött til að gerast Fyrirmyndarfélög ÍSÍ og vilja félögin sjálf hefja vinnuna strax á þessu ári. Undanfarin tvö héraðsþing hefur stjórn USVH stýrt umræðu um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Húnaþingi vestra. Var markmið stjórnar að íþróttahreyfingin á svæðinu myndi sameinast um að þrýsta á sveitarfélagið til uppbyggingar á aðstöðumálum. Þannig að í stað þess að margar greinar væru að þrýsta á aðstöðu fyrir sitt íþróttafólk myndu félögin sameinast um hvað það væri sem byrja ætti á. Fyrst var gerð skoðunarkönnun fyrir íbúa í Húnaþingi vestra um aðstöðumál sem nýtt var til umræðu á þingi 2017 og á sama þingi fór fram hópavinna þar sem einn hópur ræddi aðstöðumálin og aðrir hópar stefnumótun USVH sem nýtt var svo í fyrrgreinda Handbók USVH. Á þinginu 2018 voru niðurstöður þessarar vinnu kynntar og umræða fór fram um aðstöðumál í framhaldi af því. Í byrjun þessa árs hittust formenn aðildarfélaga sem sammæltust um að tillagan yrði lögð fram á þinginu á þessu ári. Telur stjórn USVH að um sé að ræða tímamótatillögu þar sem öll aðildarfélög koma saman og sammælast um að hefja eigi uppbyggingu eins félags. Var tillagan samþykkt samhljóða.

Á nýloknu þingi var einnig samþykkt að hvetja sveitarfélagið til að vinna að því að verða heilsueflandi samfélag og vera leiðandi í því á Norðurlandi vestra. Tilkynnt var á þinginu að UMF. Dagsbrún væri orðið óvirkt félag í bili. Engar breytingar urðu á stjórn nema að nýr varamaður kom inn, Þorbjörg Helga Sigurðardóttir fyrir hönd UMF. Hörpu. Næstu verkefni sambandsins eru útgáfa ársritsins Húna á vormánuðum, Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í júní og síðan er stefnt á góða þátttöku á Unglingalandsmótinu á Höfn í Hornafirði og Landsmóti 50+ í Neskaupstað.