Íþróttamaður HSH 2019
 28.01.2019
28.01.2019Vignir Snær Stefánsson knattspyrnumaður frá Víking Ólafsvík, var kjörinn Íþróttamaður HSH 2018 (Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu) í Stykkishólmi þann 25. janúar sl. Annað íþróttafólk var einnig heiðrað fyrir góðan árangur í sinni íþróttagrein auk þess sem veitt var viðurkenning fyrir vinnuþjark ársins.
Eftirtaldir hlutu viðurkenningar:
•	Blakmaður HSH 2018 – Lydía Rós Unnsteinsdóttir , Umf. Grundarfjarðar
•	Hestaíþróttamaður HSH 2018 - Siguroddur Pétursson, Snæfelling
•	Knattspyrnumaður HSH 2018 – Vignir Snær Stefánsson, Umf. Víking
•	Kylfingur HSH 2018 - Rögnvaldur Ólafsson, Golfklúbbnum Jökul
•	Körfuknattleiksmaður HSH 2018 – Berglind Gunnarsdóttir, Umf. Snæfell
•	Skotíþróttamaður HSH 2018 – Jón Pétur Pétursson, Skotfélag Snæfellsness
•	Vinnuþjarkur HSH 2018 – Skotgrund Skotfélag Snæfellsness
Myndirnar tók Sumarliði Ásgeirsson.
 
                        





