Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað þann 29. desember

20.12.2018

Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands halda sameiginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2018. Hófið verður haldið þann 29. desember í Silfurbergi í Hörpu og hefst kl. 18:00. Dagskráin samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttakvenna og íþróttamanna sérgreina íþrótta og kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2018. Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV. Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 63. sinn en þjálfari og lið ársins í sjöunda sinn.