Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Sýnum karakter - Jákvæð íþróttamenning

29.10.2018

Ráðstefnan „Jákvæð íþróttamenning“ verður haldin í Háskólanum í Reykjavík klukkan 13:00 til 16:00 þann 2. nóvember nk. Miðinn á ráðstefnuna kostar 2500 kr. og hægt er að kaupa miða hér.

Vinnustofa í tengslum við jákvæða íþróttamenningu verður haldin 3. og 4. nóvember. Miðinn á vinnustofuna kostar 15.000 kr. – innifalið er ráðstefnan þann 2. nóvember, vinnustofan, bókin Coaching Psycological skills in youth football: Developing The 5Cs og hádegismatur á laugardeginum. Hægt er að nálgast miða hér.

 

Ráðstefnan „Jákvæð íþróttamenning“ 

Áhersla verður á félagslegar og sálrænar hliðar íþróttanna. Við fáum að heyra ólíkar raddir og mismunandi leiðir til þess að byggja upp jákvæða menningu í íþróttastarfinu, hvort sem það er hjá einstaka flokki eða öllu félaginu. Boðið verður uppá praktískar leiðir, verkfæri, hugmyndafræði, aðferðafræði og vísindi. Vonandi eitthvað fyrir alla áhugasama um uppbyggjandi þjálfun barna og ungmenna í íþróttum. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá í meðfylgjandi mynd með fréttinni. Viðburðurinn er á facebook.

Aðalfyrirlesari verður íþróttasálfræðingurinn Dr. Chris Harwood  sem hefur þróað hugmyndafræði og aðferðir til þess að þjálfa 5 sálræna þætti með skipulögðum hætti. Þessir fimm þættir eru; Confidence, Commitment, Communication, Control og Concentration. Markmið fyrirlestursins er að kynna hugmyndafræðina á bak við bók sem Chris gaf út og kallast The 5C´s framework. Chris mun einnig fjalla um hvernig aðferðir þjálfarar, foreldrar og íþróttamaðurinn geta í sameiningu unnið að til að byggja upp heilbrigða einstaklinga en jafnframt framúrskarandi íþróttamann.

 

Vinnustofa: Jákvæð íþróttamenning

Vinnustofa fer fram þann 3. – 4. nóvember í tengslum við jákvæða íþróttamenningu og mun íþróttasálfræðingurinn Dr. Chris Harwood stýra henni. Miðinn á vinnustofuna kostar 15.000 kr. – innifalið er ráðstefnan þann 2. nóvember, vinnustofan, bókin Coaching Psycological skills in youth football: Developing The 5Cs og hádegismatur á laugardeginum. Hægt er að nálgast miða hér.

Vinnustofan er hugsuð fyrir yfirþjálfara eða þjálfara með mikla reynslu, alveg óháð íþróttagrein. Þrátt fyrir að þeir hafi unnið hugmyndafræðina fyrir knattspyrnu þá er einfalt að yfirfæra hana yfir á aðrar íþróttagreinar. Markmiðið er að kynna hugmyndafræðina á bakvið the 5Cs og með hvaða aðferðum er hægt að koma þeim í framkvæmd með skipulögðum hætti á æfingum og í keppni. Eitt af lykilhlutverkum þjálfara er að skapa umhverfi þar sem iðkendur fá tækifæri til að vaxa sem heilsteyptir einstaklingar samhliða því að taka framförum í sinni íþróttagrein. Markmið vinnustofunnar er einnig að hjálpa þjálfurum að skilja hvernig þeir geti fléttað hugmyndafræði the 5C´s inn í sína þjálfun. Chris Harwood er einn af fáum íþróttasálfræðingum sem hefur þróað hugmyndafræði byggða á vísindum íþróttasálfræðinnar og hannað aðferðir fyrir þjálfara barna og ungmenna til setja upp áætlun fyrir tímabilið.

Dagskrá vinnustofunnar:

Laugardagurinn 3. nóvember í KSÍ frá kl.9:00 til 16:00 (hádegismatur innifalinn). Farið verður yfir þá sálfræðilegu þætti sem the 5C´s hugmyndafræðin byggir á;
• Commitment / Skuldbinding, taka ábyrgð
• Communicaton / Samskipti
• Concentration / Einbeiting
• Control / Sjálfsstjórn
• Confidence / Sjálfstraust
Rætt verður um leiðir og aðferðir til að móta þessa þætti hjá börnum og ungmennum. Farið verður yfir vinnu sem hefur átt sér stað innan knattspyrnu akademíu hjá liði í ensku úrvalsdeildinni. Einnig verður farið yfir það hvernig þjálfarar geta þróað og styrkt sambandið við foreldra í þá átt að þau séu þátttakendur í að þroska og þjálfa þessa fimm sálrænu þætti með iðkandanum.

Sunnudagurinn 4. nóvember í Egilshöll frá kl.9:30 til 12:00.
Þjálfarar fá tækifæri til þess að æfa sig í aðferðafræðinni í að flétta inn eitt ákveðið “C” eða mörg “C” á vellinum með iðkendum, svo þeir geti byggt upp sjálfstraust í að setja fókusinn á þessa sálrænu þætti á æfingu og viti eftir hverju þeir eru að sækjast.

Til þess að tryggja gæði á vinnustofunni þá verður takmarkaður fjöldi þátttakenda í kringum 40 manns. Í fyrstu atrennu viljum við óska eftir því að félag sendi einungis tvo þjálfara. Ástæðan er sú að við viljum reyna að fá dreifingu, bæði á félög og eins íþróttagreinar. Vinsamlegast skráið ykkur því tímanlega. Ef það verður ekki orðið fullt þann 29. október þá munum við opna fyrir þau sæti sem eru laus.