Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Sýnum karakter - Allir með

29.09.2017Sýnum karakter - Allir með er tileinkuð ungu fólki innan íþróttahreyfingarinnar. Þátttakendur eru á aldrinum 13-25 ára, 60+ ungmenni og 20+ einstaklingar starfandi eða í stjórnum í íþróttahreyfingunni.

Skráning fer fram hér.

Boðið er upp á að greiða fyrir flug og ferðakostnað. Þátttakendur fá uppáskrifað bréf um þátttökuna þar sem óskað er eftir leyfi úr skóla þennan dag (föstudag). Horft er á þetta sem óformlegt nám. Ráðstefnan er styrkt af Erasums+ og evrópu unga fólksins. Allir þátttakendur fá viðurkenningu og staðfestingu á þessu óformlega námi.

Húsið opnar kl.9:00 með skráningu og léttum veitingum. Setning er kl.10:00. Ráðstefnuslit eru kl.16:00.

Markmiðið er að varpa frekara ljósi á ástæður þess að ungmenni velja að hætta þátttöku í íþróttum. Af hverju er þátttaka barna og ungmenna af erlendum uppruna minni? Hvers vegna hætta ungmenni að taka þátt og hvað getur íþróttahreyfingin gert til að koma í veg fyrir þessa þróun? Hvernig er hægt að virkja þá sem hætta íþróttaiðkun itl annarra starfa innan íþróttanna, t.d. sem þjálfari, dómari, sjálfboðaliði eða stjórnarmaður?

Markmið verkefnisins er að hvetja stjórnendur íþróttahreyfingarinnar til að auka samtal og samráð við ungmenni og finna leið til að auka þátttöku ungs fólks í starfinu.

Dagskrá
9:00-10:00 Húsið opnar
10:00 Setning
10:05 Fyrirlestrar
Hafrún Kristjánsdóttir – Sýnum karakter
Gunnar Gunnarsson – „Get ég“?
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson - Af hverju að gerast dómari?
Fjolla Shala – Íþróttir gerðu mig að því sem ég er
Vanda Sigurgeirsdóttir – Jákvæðir og neikvæðir leiðtogar
Pálmar Ragnarsson – Breyttir draumar

12:00 Fyrirkomulag hópavinnu kynnt
12:15 Hádegisverður
13:00 Vinnustofur undir stjórn Önnu Steinsen frá KVAN
14:30 Kaffi
15:00 Pallborðsumræður
16:00 Ráðstefnuslit

Ráðstefnan er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands, ásamt verkefninu Sýnum karakter. Vefsíða Sýnum karakter er synumkarakter.is