Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Íþróttamaður ársins fer fram 29. desember

27.12.2016

Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands halda sameiginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2016. Hófið verður haldið þann 29. desember í Hörpu og hefst kl. 18:00.

Dagskráin samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttamanna og íþróttakvenna sérgreina íþrótta og kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2016. Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV. Íþróttafólk sérsambanda fyrri ára má sjá hér á vefsíðu ÍSÍ og fyrrum íþróttamenn ársins má sjá á vefsíðu Samtaka íþróttafréttamanna.

Tveir einstaklingar verða útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ. Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum.

Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 61. sinn en þjálfari og lið ársins í fimmta sinn.

Listi yfir íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ 2016 birtist á vefsíðu ÍSÍ kvöldið 29. desember.

Myndir með frétt