Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
24

Ríó 2016 - Frjálsíþróttakeppendur í æfingabúðum

09.08.2016

Þær Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir voru viðstaddar setningarathöfn Ólympíuleikanna í Ríó s.l. föstudagskvöld. Í beinu framhaldi héldu þær ásamt þjálfurum sínum þeim Gunnari Páli Jóakimssyni og Terry Mchuch í æfingabúðir í bæinn Penedo sem er í um 200 kílómetra fjarlægð frá Ríó. Þar æfir hópurinn í góðum aðstæðum. Æfingabúðirnar eru skipulagðar af finnsku ólympíunefndinni og eru þeirra íþróttamenn við æfingar á sama stað. Mjög vel hefur verið tekið á mótið hópnum bæði af heimamönnum sem og finnska hópnum. Á næstu dögum munu Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur og Róbert Magnússon sjúkraþjálfari bætast í hópinn þeim til aðstoðar.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Penedo.

Myndir með frétt