Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
24

Ársþing ÍBA

19.04.2016Íþróttabandalag Akureyrar hélt ársþing sitt í Golfskálanum á Akureyri þriðjudaginn 12. apríl síðastliðinn.  Þingforseti var kjörinn Logi Einarsson og stýrði hann þinginu af röggsemi.  Í upphafi þings var Sigurbjörn Árni Arngrímsson með fyrirlestur um heilsu og hreyfingu sem féll vel í þingfulltrúa.  Geir Kristinn Aðalsteinsson var endurkjörinn formaður bandalagsins en varaformaðurinn Haukur Valtýsson gekk úr stjórn.  Haukur var eins og kunnugt er kosinn formaður UMFÍ fyrir skömmu.  Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu s.s. um breytingu á reglugerð um kjör á íþróttamanni ársins og skipun nefndar um endurskoðun á reglugerð um lottóúthlutun.  Einnig var samþykkt tillaga þar sem því var vísað til stjórnar ÍBA að skoða möguleika á hagræðingu í ferðakostnaði fyrir aðildarfélög ÍBA m.a. með samnýtingu á rútum o.fl.  Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Helga Steinunn Guðmundsdóttir varaforseti ÍSÍ og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.  Á myndinni er Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður ÍBA.