Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Frímerki Smáþjóðaleikanna 2015

27.04.2015Þann 30. apríl nk. verður nýtt frímerki gefið út hjá Íslandspósti, með myndum af þeim íþróttagreinum sem keppt verður í á Smáþjóðaleikunum 2015. Frímerkið er gefið út af því tilefni að Smáþjóðaleikarnir eru haldnir á Íslandi í ár. Hönnuður frímerkisins er Elsa Nielsen grafískur hönnuður og hluti af hönnunarteymi Smáþjóðaleikanna 2015.

Um 30 ný frímerki eru gefin út á hverju ári, hvert og eitt þeirra sérstaklega hannað. Frímerkjasalan er með sinn eigin vef þar sem hægt er að kaupa frímerki. Vefurinn er á fimm tungumálum því íslensk frímerki vekja athygli um allan heim. Skoðaðu www.frimerki.is/