Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er í dag, 8. október

08.10.2014Í ár tekur Ísland þátt í áttunda skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi eru 66 skólar skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri. Göngum í skólann verkefnið rúllaði af stað 10. september og því lýkur í dag, miðvikudaginn 8. október, á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum.

Nemendur, foreldrar og starfsfólk þátttökuskólana hafa verið hvattir til þess að nota virkan ferðamáta, ganga eða hjóla í skólann síðastliðinn mánuð. Í mörgum skólum er m.a. keppt um gullskóinn milli bekkja eða bekkjardeilda, skólavinir, sem eru eldri nemendur, eru hvattir til að sýna yngri nemendum styðstu og öruggustu leiðina í skólann, nemendur hafa mælt vegalengdina í skólann og bíllausi dagurinn haldinn hátíðlegur. Skólarnir haf einnig beint kastljósinu á fræðslu um umferðaröryggi og mikilvægi hreyfingar með því að fara í fjallgöngur, taka þátt í norræna skólahlaupinu eða hafa heilsu og hreyfidaga. Þess má geta að í könnun sem var gerð í Fossvogsskóla kom í ljós að tæp 90% nemenda komu gangandi eða hjólandi í skólann einhverja daga. Fréttir og myndir frá skólunum má sjá hér eða á www.gongumiskolann.is


Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Um leið er ætlunin að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Auk þess eru markmið Göngum í skólann þau að kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli, draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum og stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðarstofa og Landssamtökin Heimili og skóli. 

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Inga Viggósdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti, sigridur@isi.is eða í síma 868-8018.