Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Fræðslufundur um kynferðislegt ofbeldi

22.04.2013

Miðvikudaginn 24. apríl mun Dr. Celia Brackenridge prófessor í íþróttum við Brunel háskóla í Bretlandi vera með fræðslufund um kynferðislega áreitni/ofbeldi innan íþrótta og fer fundurinn fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar og hefst hann kl. 13.

Dr. Celia er þekktur og virktur fræðimaður innan sinnar fræðigreinar og hefur skrifað bækur um málefnið. Þá er hún gestaprófessor í skólum eins og Íþróttaháskóla í Þýskalandi og Smith College Massachussets. Dr. Celia hefur starfað fyrir UNICEF, þá stýrði ráðstefnu um íþróttafræði, -kennslu og -læknisfræði fyrir Ólympíuleikana í London 2012.

Fræðslufundurinn verður með heldur óhefðbundnu sniði, hún verður með stutta framsögu, en svo mun hún gefa áheyrendum góðan tíma til að spyrja spurninga. Fundurinn verður öllum opinn og aðgangur ókeypis. Fundurinn verður tekinn upp og sendur út á netinu. Skráning fer fram á skraning@isi.is