Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Frétt frá ársþingi USVS

18.03.2013

43. Sambandsþing USVS var haldið í félagsheimilinu Leikskálum í Vík laugardaginn 16.mars.  Ragnheiður Högnadóttir var endurkjörin formaður USVS og með henni sitja í stjórn sambandsins þau Pálmi Kristánsson gjaldkeri, Petra Kristín Kristinsdóttir ritari, Erla Þórey Ólafsdóttir meðstjórnandi og Ástþór Jón Tryggvason meðstjórnandi.  Þingið gekk vel og var starfsamt en voru þar m.a. veitt verðlaun fyrir Íþróttamann ársins og efnilegasta íþróttamann ársins. Að þessu sinni varð Þorsteinn Björn Einarsson frá Umf. Kötlu fyrir valinu sem Íþróttamaður ársins og Svanhildur Guðbrandsdóttir var valin Efnilegasti íþróttamaður ársins.

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Gústaf A. Hjaltason.