Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
21

Ásta Laufey og Ólafur Elí heiðruð á þingi HSK

13.03.2013

Á ársþingi HSK síðastliðinn laugardag voru hjónin Ásta Laufey Sigurðardóttir og Ólafur Elí Magnússon heiðruð með Silfurmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar.  Þau hjón hafa um árabil verið helstu burðarásar í kröftugu starfi Íþróttafélagsins Dímonar í Rangárþingi eystra.  Þau hafa bæði átt sæti í nefndum hjá HSK á undanförnum árum og Ásta í varastjórn HSK.

Á myndinni, sem tekin er við þetta tækifæri, eru frá vinstri Jón Gestur Viggósson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, Ásta Laufey Sigurðardóttir og Ólafur Elí Magnússon.