Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
27

Sigrún Huld Hrafnsdóttir útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ

04.01.2024

 

Sigrún Huld Hrafnsdóttir sundkona var í kvöld tuttugasti og fimmti einstaklingurinn sem útnefndur er í Heiðurshöll ÍSÍ. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti útnefninguna einróma á fundi sínum 7. desember síðastliðinn. Afhending viðurkenningarinnar fór fram í beinni útsendingu RÚV þegar úrslit úr kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2023 voru tilkynnt.

Sigrún Huld er ein sigursælasta íþróttakona Íslands frá upphafi. Hún er fædd 12. janúar árið 1970 og hóf að æfa sund með Íþróttafélaginu Ösp í Reykjavík árið 1982. Hæfileikar Sigrúnar í sundlauginni komu snemma í ljós og hún varð fyrst Íslendinga til að vinna til verðlauna á stórmóti í flokki þroskahamlaðra. Hún var sunddrottning HM árið 1989 sem haldið var í Svíþjóð þar sem hún vann til fimm gullverðlauna.
Á Ólympíumótinu í Madríd árið 1992 vann Sigrún til níu gullverðlauna, tvennra silfurverðlauna og sannaði þar enn frekar yfirburði sína í sundi þroskahamlaðra kvenna. Á heimsmeistaramótinu árið 1994 á Möltu var í fyrsta skipti sameiginlegt mót í flokkum þroskahamlaðra, hreyfihamlaðra og blindra. Þar vann Sigrún til sex verðlauna, þar af fern gullverðlaun. Á Ólympíumótinu í Atlanta árið 1996 vann hún svo ein bronsverðlaun, en þá hafði keppnisgreinum verið fækkað mikið í hverjum flokki vegna skipulagsbreytinga. Það var hennar síðasta stórmót. 
Sigrún Huld setti fjölda heimsmeta á íþróttaferlinum, var valin íþróttamaður Reykjavíkur árið 1992 og það sama ári var hún maður ársins að mati hlustenda Rásar 2 og Bylgjunnar. Þá var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2015.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur í Heiðurshöll ÍSÍ.

Myndir/Viktor Örn Guðlaugsson og úr einkasafni

Myndir með frétt