Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
28

Þátttakendur á Vetrarólympíuleikum ungmenna 2024 staðfestir

02.01.2024

 

Það styttist í Vetrarólympíuleika ungmenna, sem fram fara í Gangwon í Suður-Kóreu frá 19. janúar - 1. febrúar nk.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur staðfest íslenska hópinn sem er eftirfarandi:

Alpagreinar:
Dagur Ýmir Sveinsson, keppandi
Eyrún Erla Gestsdóttir, keppandi
Þórdís Helga Grétarsdóttir, keppandi
Egill Ingi Jónsson, þjálfari
Sveinn Arndal Torfason, sjúkraþjálfari/þjálfari

Skíðaganga:
Hjalti Böðvarsson, keppandi
María Kristín Ólafsdóttir, keppandi
Einar Ágúst Yngvason, þjálfari
Guðmundur Rafn Kristjánsson, þjálfari

Snjóbretti:
Júlíetta Iðunn Tómasdóttir, keppandi
Reynar Hlynsson, keppandi
Jökull Elí Borg, þjálfari

Aðalfararstjóri á leikunum verður Brynja Guðjónsdóttir, sérfræðingur á Afrekssviði ÍSÍ.
Flokksstjóri verður Brynja Hrönn Þorsteinsdóttir, afreksstjóri Skíðasambands Íslands.
Sjúkraþjálfari skíðagöngu og snjóbretta verður Margrét Ársælsdóttir. 

Framundan er upplýsingafundur með öllum þátttakendum og aðstandendum. Farið verður yfir helstu upplýsingar, svo sem ferðatilhögun, skipulag og keppnisfyrirkomulag. Að mörgu er að hyggja þegar farið er í keppnisferð af þessu tagi.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu leikanna

ÍSÍ óskar keppendum og starfsmönnum í teymi íslenska liðsins góðs gengis á leikunum.