Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Nikolay Mateev mótsstjóri á Evrópuleikunum í skylmingum

05.07.2023

 

Um liðna helgi lauk þriðju Evrópuleikunum, sem haldnir voru í Kraków-Małopolska í Póllandi að þessu sinni. Um 7.000 keppendur frá 48 löndum tóku þátt og var keppt í 26 íþróttagreinum víðs vegar um Krakow og Malopolska.  Íslenskir keppendur voru átta í fimm íþróttagreinum og áttu Íslendingar þrjá keppendur í skylmingum. 

En það voru ekki bara þjálfarar og keppendur sem tóku þátt fyrir Íslands hönd.  Nikolay Mateev formaður Skylmingasambands Íslands var í stóru hlutverki á Evrópuleikunum.  Nikolay, sem er í stjórn evrópska skylmingasambandsins og formaður mótanefndar hjá evrópska skylmingasambandinu, var mótsstjóri yfir skylmingunum á Evrópuleikunum og fóru þeir mjög vel fram.  

Fyrir Íslands hönd kepptu Sævar Baldur Lúðvíksson, Gunnar Egill Ágústsson og Andri Nikolaysson Mateev, en þess má geta að Andri er sonur Nikolay.  

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá Nikolay Mateev ásamt Andra Stefánssyni, framkvæmdastjóra ÍSÍ.  Einnig Nikolay ásamt keppendum Íslands. 

Myndir með frétt